Fjölmiðlafrelsi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa umræðu. Það er alveg ljóst að frjálsir fjölmiðlar eru forsenda opinnar lýðræðislegrar umræðu og veita stjórnvöldum, atvinnulífi og helstu stofnunum samfélagsins nauðsynlegt aðhald. Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á fjölbreytni í flóru fjölmiðla með öflugu almannaútvarpi og einkareknum fjölmiðlum og svo segir í stjórnarsáttmála sitjandi ríkisstjórnar. Að því sögðu er ég auðvitað hugsi yfir þeirri stöðu íslenskra fjölmiðla hvað varðar fjölmiðlafrelsi, að við séum í 15. sæti á lista alþjóðlegra samtaka. Ísland á auðvitað að skipa sér á bekk með öðrum Norðurlöndum og vera þarna á lista með þeim ríkjum sem eru efst.
Hv. þingmaður spurði hvað væri verið að gera til að efla öryggi blaðamanna og hvort hæstv. ráðherra væri meðvitaður um umræðu um falsfréttir. Því er til að svara að við erum að vinna fjölmiðlastefnu sem verður kynnt öllum hagaðilum og viljum vinna hana í góðri samvinnu við þá sem starfa við fjölmiðla á Íslandi. Það er gríðarlega mikilvægt. Við sjáum auðvitað hvað hefur verið að gerast, ekki bara hér á landi heldur annars staðar, vegna þeirrar tæknibyltingar sem við stöndum frammi fyrir. Í Svíþjóð er það svo að um 73% af öllum auglýsingatekjum fara til erlendra aðila, annars vegar erum við að tala um streymisveitur og svo aðrar veitur. Við erum að bregðast við þessu eins og við getum og viljum auðvitað gera enn betur í þeim efnum og erum, eins og ég hef ítrekað sagt, að horfa til Norðurlandanna. Annars vegar mun fjölmiðlastefnan ná að einhverju leyti utan um það hvernig við hlúum betur að fjölmiðlafólki á Íslandi og markmiðið er auðvitað að við förum upp í þessu mati. Í öðru lagi fylgjumst við mjög vel með, til að mynda spurði hv. þingmaður hvort við værum meðvituð um falsfréttir. Já, að sjálfsögðu erum við meðvituð um falsfréttir en ég hef ekki fengið það inn á borð til mín að við séum að veita styrki til aðila sem iðka það að breiða út falsfréttir.
Virðulegi forseti. Saga okkar er þannig að það voru fjölmiðlamenn á 19. öld og 20. öld sem sáu til þess að hér var mjög öflug umræða um öll framfaramál landsins. Það er ekki að ástæðulausu sem við tölum um fjórða valdið vegna þess að það veitir, eins og ég sagði í upphafsorðum mínum, þetta nauðsynlega aðhald sem við þurfum. Eitt af því sem við tökum eftir, þegar við erum að vinna að fjölmiðlastefnunni, eru þessar stóru breytingar, streymisveiturnar og þessir risar. Við stefnum að því að umhverfi íslenskra fjölmiðla verði svipað og kollega okkar á Norðurlöndunum og það er mjög mikilvægt að það takist á þessu kjörtímabili að búa þannig um hnútana.