Fjölmiðlafrelsi.
Virðulegi forseti. Frjálsir fjölmiðlar þurfa einfaldlega raunhæf tækifæri. Viðbrögð stjórnvalda við þeim vanda sem hefur þróast voru að styrkja fjölmiðla með beinum hætti en það er hætta á að tímabundnir styrkir til fjölmiðla geri þá fjárhagslega háða framlögum frá ríkinu. Það er vont af mörgum ástæðum og þá ekki síst út af þeirri bjögun að aðhaldshlutverk fjölmiðla sé fjármagnað af ríkisvaldinu. Þrátt fyrir styrkjaframlög standa fjölmiðlar frammi fyrir sömu risaáskorunum sem eru til að mynda aukin samkeppni við samfélagsmiðla þar sem allir eru í raun einhvers konar frétta- og afþreyingarstjórar enda auglýsingar að færast í auknum mæli frá fjölmiðlum til samfélagsmiðla. Þar með hefur opnast gluggi fyrir þau fyrirtæki sem selja vörur sem óheimilt er að auglýsa samkvæmt íslenskum lögum, svo sem tóbak, áfengi og íþróttagetraunir, til íslenskra neytenda í gegnum samfélagsmiðla. Innlendir fjölmiðlar fá enga sneið af þessari auglýsingaköku á meðan íslenski löggjafinn þráast við að leggja bann við auglýsingum til að mynda á áfengi í íslenskum miðlum.
Þegar rætt er um rekstrarumhverfi fjölmiðla er ekki annað hægt en að ræða Ríkisútvarpið sérstaklega. Fyrir utan að Ríkisútvarpið fær milljarða króna forgjöf á aðra fjölmiðla með ríkisstuðningi hafa yfirburðir Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði gert öðrum miðlum erfiðara fyrir í samkeppninni. Það er augljóst öllum sem vilja sjá að þessi staða gengur ekki upp. Það er því brýnt, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, að ráðast í heildarendurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi til að rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla verði heilbrigt og raunhæfur kostur fyrir þá sem áhuga hafa á að leggja í slíkan rekstur. En þá verður að vera samkeppnisumhverfi sem þeir raunverulega ráða við.