153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

Fjölmiðlafrelsi.

[11:23]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu sem er auðvitað nauðsynleg og við þurfum að taka upp reglulega og ígrunda. Þetta hafa verið viðkvæm mál er varða málfrelsi og tjáningarfrelsi og líka mannorð, orðspor. Orðsporsáhætta er ein af stóru ögrunum nútímans. Það er líka gott að spyrja sig: Eru fjölmiðlar frjálsir? Er raunverulegt fjölmiðlafrelsi ríkjandi?

Til skamms tíma voru fjölmiðlar beintengdir stjórnmálaflokkum og boðuðu fagnaðarerindi hvers stjórnmálaflokks; Tíminn var fyrir Framsóknarflokkinn, Morgunblaðið fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Alþýðublaðið fyrir Alþýðuflokkinn og svo fram eftir götunum. Hversu frjálsir voru þessir fjölmiðlar til að tjá sig um annað en það sem hentaði og virkaði í samkeppninni? Við vitum líka að fjölmiðlar eru jafnan bara fyrirtæki eins og hver önnur fyrirtæki og þurfa að reka sig af auglýsingum eða áskriftum. Að RÚV undanskildu er auðvitað verið að taka fjárhagslega áhættu í hverju tilfelli. Þá eru freistingar á borð við smellafréttirnar og fyrirsagnirnar mjög áberandi. Við verðum líka að taka tillit til þeirra nýju miðla sem eru hvað frekastir til fjörsins hér í okkar samfélagi í dag sem eru samfélagsmiðlarnir, þar sem hver og einn er bæði ritstjóri og blaðamaður og, eftir atvikum, setur fram það sem hentar án þess að það gildi um það sömu reglur og venjulega fjölmiðla. Við skulum gera okkur grein fyrir að veggurinn á milli samfélagsmiðla og fjölmiðla er orðinn mjög þunnur og það er mjög vandmeðfarið hvernig þar skarast á (Forseti hringir.) lögvarin réttindi fólks til friðhelgi einkalífs (Forseti hringir.) og hvernig vegið er að orðspori fólks. Þetta er m.a. það sem við þurfum að taka upp í þessari umræðu um miðlana.