153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

Fjölmiðlafrelsi.

[11:28]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Fjölmiðlar eru spegill á stöðu lýðræðis í hverju samfélagi og samfélag eins og okkar fengi ekki þrifist án þeirrar lýðræðislegu umræðu sem frjálsir fjölmiðlar spegla og standa fyrir. Hlutverk þeirra gagnvart valdhöfum er grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi sem vill standa undir nafni. Þegar við tölum hér í þessum sal gjarnan um innviði og mikilvægi þess að þeir séu sterkir þá erum við líka að tala þar um fjölmiðla. Við höfum séð skýr dæmi þess hvaða áhrif það getur haft á fjölmiðlafólk að standa fyrir umfjöllun um valdamikil öfl og ég ætla að leyfa mér í því sambandi að nefna skæruliðadeild Samherja, svokallaða. Þar verðum við að geta dregið skýr mörk á milli þess sem er munur á skoðunum og skoðanafrelsi og skoðanaskiptum og hreinræktuðum árásum á fjölmiðlana í landinu. Þess vegna skiptir svo miklu máli að stjórnvöld tryggi eðlilegan lagaramma sem veitir miðlunum svigrúm til að starfa eðlilega út frá þeirra grundvallarhlutverki. Á Norðurlöndunum ríkir nokkuð almenn sátt um það að fjölmiðlarnir séu hornsteinn lýðræðisins. Umræðan þar snýst um það með hvaða hætti eigi að styrkja þá og styðja frekar en að samtalið snúist um hvort rétt sé að ríkið styðji við fjölmiðlana. Og ég er þessu sammála en mér finnst útfærslan skipta máli. Þar vil ég nefna Ríkisútvarpið. Ég er einlægur stuðningsmaður þess og hlutverks þess en á milli RÚV og hinna einkareknu þarf að vera heilbrigt samband og heilbrigð samkeppni.

Ég vil loka á því að brýna ráðherra til dáða um að standa með fjölmiðlunum í landinu hvað varðar rekstrarlegt umhverfi og sjálfstæði þeirra, að þeir finni að þeir njóti stuðnings um raunverulegt sjálfstæði því að án fjölmiðlafrelsis er lýðræðið sjálft í hættu. Að ráðherra fjölmiðla (Forseti hringir.) standi með fjölmiðlunum opinberlega þegar að þeim er vegið og á þá er ráðist.