153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

Fjölmiðlafrelsi.

[11:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Það eru mjög áhugaverðar umræður að eiga sér stað um þetta mál enda í mjög mörg horn að líta. Þessi umræðugrundvöllur, sem hv. þm. Jódís Skúladóttir kemur hér með, býður upp á umræðu um mjög mikilvæg atriði í okkar ríki sem lýðræðisríki. Við höfum séð á undanförnum árum að þessi atriði sem við í dag teljum okkur geta tekið sem sjálfsögðum, fjölmiðlafrelsi og annað — við erum að sjá ógnir við fjölmiðlafrelsi á Íslandi sem ég held að margir hefðu ekkert endilega getað ímyndað sér fyrir nokkrum árum að myndu koma upp á Íslandi. Það sem þetta kennir okkur er auðvitað að við þurfum alltaf að vera vakandi. Við þurfum stanslaust að vera vakandi fyrir breytingum sem eru að verða á bæði reglum og öðru af hálfu stjórnvalda og annarra en líka bara þeirri menningu sem hér ríkir. Það er mjög hryggilegt að sjá hvernig t.d. hefur verið sótt að blaðamönnum með málshöfðunum og öðru á undanförnum árum, eins og hefur verið nefnt hér í umræðunni. Síðan er það sem ég nefndi áðan, sem ég held að sé kannski líka viðhorfsvandi fremur en eitthvað annað, varðandi aðgengi fjölmiðla að störfum lögreglu, að störfum stjórnvalda. Það eru einhver undirliggjandi viðhorf einhvers staðar sem kannski líta á fjölmiðla og starf fjölmiðla sem einhvers konar lúxusverkefni, að geta verið að fylgjast með því sem er í gangi. En það er náttúrlega ekki svoleiðis. Þetta er ein af grunnstoðum lýðræðisríkis.

Það sem mig langaði að nefna hér í lokin á þessari umræðu — ég hlakka til að heyra frá hæstv. ráðherra, hún þyrfti sennilega meiri tíma en hún hefur til þess að svara öllum þeim athugasemdum sem hafa komið hérna fram — eru akkúrat þessar málshöfðanir á hendur blaðamönnum sem eru mjög alvarlegt mál. Þetta er eitthvað sem ég held að við hefðum ekki getað gert okkur í hugarlund fyrir nokkrum árum að myndi gerast hér á landi. En við erum að horfa á það gerast í dag.