153. löggjafarþing — 76. fundur,  9. mars 2023.

veiting ríkisborgararéttar.

820. mál
[12:00]
Horfa

Flm. (Birgir Þórarinsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar. Á þessu frumvarpi eru nöfn 21 einstaklings. Nöfnin liggja fyrir á þingskjalinu. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 76 umsóknir um ríkisborgararétt á haustþingi 153. löggjafarþings. Skv. 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum. Nefndin leggur til að umsækjendum á 14 umsóknum verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni. Auk fjögurra barna umsækjenda er lagt til að þremur börnum umsækjenda vegna umsókna sem áður hafa komið til meðferðar verði veittur ríkisborgararéttur. Á grundvelli laga um ríkisborgararétt fá börn þeirra sem öðlast ríkisborgararétt á grundvelli laga ríkisborgararétt samhliða forsjárforeldrum ef þau eru ógift, undir 18 ára aldri, eigi börnin lögheimili hér á landi. Nöfn barna eru að jafnaði ekki birt í þingskjalinu. Að þessu sinni er nauðsynlegt að birta nöfn sjö barna þar sem ekki lá fyrir að þau uppfylltu skilyrði 5. gr., sbr. 6. mgr. 6. gr. laganna. Allsherjar- og menntamálanefnd leggur því til að 21 einstaklingur öðlist ríkisborgararétt að þessu sinni.

Það er von mín að frumvarpið verði hér samþykkt af hv. þingmönnum og verði frumvarpið samþykkt óska ég þessum einstaklingum innilega til hamingju.

Ég vil þakka hv. þingmönnum Jódísi Skúladóttur og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir gott samstarf í undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar, sem fór yfir þessar umsóknir, og þá færi ég allsherjar- og menntamálanefnd þakkir.