ákvörðun nr. 59/2021 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn o.fl.
Frú forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd fimm ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar frá árunum 2021 og 2022 um breytingar á IX., X. og XI. viðauka og bókun 37 við EES-samninginn. Ég ætla að fara nokkrum orðum um hverja ákvörðun fyrir sig.
Í fyrsta lagi ákvörðun nr. 59/2021. Með henni er tekin inn í EES-samninginn tilskipun um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki. Tilskipunin mælir fyrir um samræmdar lágmarksreglur um aðgengi að opinberum vefjum, einkum fyrir fatlað fólk. Aðgengisstefna fyrir opinbera vefi sem ríkisstjórn Íslands samþykkti í maí 2012 tekur mið af sambærilegum kröfum. Gert er ráð fyrir að tilskipunin verði innleidd með frumvarpi til laga um högun upplýsingatækni í rekstri ríkisins, sem fjármála- og efnahagsráðherra mun væntanlega leggja fram á 154. löggjafarþingi. Einnig er til skoðunar hvort gerðin verði innleidd með sérlögum.
Í öðru lagi er tekin fyrir ákvörðun nr. 145/2022. Hún fellir inn í EES-samninginn tilskipun um breytingu á eldri reglum á sviði fjármálaþjónustu sem þegar hafa verið teknar upp í samninginn. Tilskipunin er hluti af viðbrögðum Evrópu við fjármálakreppunni. Veigamestu breytingarnar lúta að reglum um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, svokallaðar MREL-kröfur. Fjármála- og efnahagsráðherra mun leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020, á yfirstandandi löggjafarþingi sem innleiðir tilskipunina.
Í þriðja lagi eru, með ákvörðun nr. 329/2022, felldar inn í EES-samninginn tvær gerðir sem einnig breyta eldri reglum á sviði fjármálaþjónustu sem eru hluti af samningnum. Breytingarnar eru ívilnandi á þann hátt að upplýsingagjöf sjóða til almennra fjárfesta áður en þeir fjárfesta í sjóðunum er einfölduð, þannig að komist sé hjá tvítekningu upplýsinga. Þegar hafa verið gerðar lagabreytingar til innleiðingar reglugerðinni og tilskipuninni í íslenskan rétt.
Í fjórða lagi fellir ákvörðun nr. 333/2022 inn í EES-samninginn reglugerð um að koma á miðlægri evrópskri þjónustugátt. Gáttin auðveldar öllum sem hafa áhuga á að búa, starfa eða stunda viðskipti í öðru EES-ríki að finna upplýsingar um reglur og afgreiðsluferla mála í hverju landi. Einnig er þeim gert auðveldara að fá aðstoð við og aðgang að stafrænum þjónustuferlum í öðrum EES-ríkjum í gegnum samhæft notendavænt viðmót á tungumáli sem þeir geta skilið. Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um upplýsingatækni í rekstri ríkisins, sem ég minntist á áðan, mun væntanlega innleiða þessa reglugerð en einnig er til skoðunar hvort gerðin verði innleidd með sérlögum.
Að lokum er það ákvörðun nr. 337/2022, sem tekur upp í EES-samninginn tilskipun sem gerir breytingar á reglum á sviði hljóð- og myndmiðlunar. Helstu breytingarnar eru að svokallaðar mynddeiliveitur munu falla að hluta til undir gildissvið tilskipunarinnar. Til skýringar, með leyfi forseta, þá kallast mynddeiliveitur á ensku „video sharing platforms“. Einnig eru ítarlegri ákvæði sett um staðfestu fjölmiðla og auknar kröfur gerðar um framboð á evrópsku efni þar sem miðlað er efni eftir pöntun. Þá er gert ráð fyrir að efni tilskipunarinnar verði innleitt með breytingum á lögum nr. 38/2011, um fjölmiðla, og mun menningar- og viðskiptaráðherra leggja fram frumvarp þar að lútandi á yfirstandandi löggjafarþingi.
Frú forseti. Haft var samráð við viðeigandi þingnefndir Alþingis vegna upptöku umræddra gerða í samninginn sem gerðu ekki athugasemdir við upptöku þeirra á þann hátt sem tilgreint er í þingsályktunartillögunni. Nánari upplýsingar m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna og kostnað sem af henni hlýst má finna í meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar.
Ég legg til að þegar umræðu þessari lýkur verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.