einföldun á ferli umsókna um sérstök útgjöld vegna barns.
Forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um einföldun á ferli umsókna um sérstök útgjöld vegna barns. Tillagan er lítil og nett með stuttri greinargerð og ber því ekki með sér að vera neitt sérstakt stórmál. Engu að síður er hér um að ræða mikilvægt mál fyrir þá sem þurfa að standa í því að sækja um sérstök útgjöld vegna barns.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að flýta þróun rafrænna samskipta og einfalda ferli umsókna hjá sýslumanni um sérstök útgjöld vegna barns. Áhersla verði lögð á að auðvelda aðgengi milli ríkisaðila að upplýsingum og gögnum vegna umsókna um sérstök útgjöld.“
Flutningsmenn tillögunnar eru auk mín hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.
Samkvæmt 60. gr. barnalaga, nr. 76/2003, geta foreldrar, ef barn á fasta búsetu hjá öðru foreldra sinna, óskað staðfestingar sýslumanns á samningi vegna útgjalda við skírn, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, sjúkdóm, greftrun eða af öðru sérstöku tilefni. Eins er hægt af sama tilefni að úrskurða það foreldri sem barn býr ekki hjá til þess að inna af hendi sérstakt framlag vegna útgjalda sem þessa. Á vefsíðunni syslumenn.is og á island.is má finna stafrænt eyðublað um beiðni um úrskurð um sérstakt framlag til framfærslu barns sem fylla þarf út í samræmi við skilyrði laganna, þ.e. barn, málsaðila, tilefni og eins líka fjárhæð kröfu. Með ákveðnum beiðnum þurfa einnig að fylgja sérstök fylgiskjöl frá opinberum aðilum í samræmi við tilefni hverju sinni, svo sem skattframtöl, og þá stimpluð, tekjuyfirlit, forsjárvottorð, gildandi ákvörðun um meðlag og yfirlit frá sjúkratryggingum vegna greiðsluþátttöku. Það að safna öllum þessum fylgiskjölum getur hreinlega vaxið fólki í augum. Sú sem hér stendur telur að kröfur hins opinbera til borgara um framlagningu fylgiskjala við málsmeðferð í málum barna séu umtalsverðar og íþyngjandi, sérstaklega á tímum þar sem stafrænar lausnir og rafræn stjórnsýsla fara vaxandi. Það að fara í gegnum ferli sem þetta getur reynst sumum kvíðvænlegt, sér í lagi ef samskipti milli aðila hafa verið erfið. Skrefin inn á skrifstofu sýslumanns geta einnig reynst sumum þung. Sú sem hér stendur telur að kerfið ætti ekki að vera til þess að ýta undir að fólk hreinlega gefist upp áður en lagt er af stað heldur að aðstoða fólk við það að sækja sér sjálfsögð réttindi. Af þessum sökum er hér lagt til að flýta og hraða þróun rafrænna samskipta í málefnum barna og auðvelda aðgengi milli ríkisaðila að upplýsingum og gögnum vegna umsókna. Sem lið í þeirri vinnu er mikilvægt að skoða hvort hægt sé að aflétta frumkvæðisskyldu málsaðila við öflun opinberra fylgiskjala og færa þá skyldu yfir á ríkið eða hreinlega auka heimildir stjórnvalda til þess að staðfesta tilvist og efni upplýsinga í gegnum vefinn island.is. Samhliða verði tryggt að sýslumannsembættunum sé gert kleift að afla viðkomandi gagna með stafrænum hætti, eftir atvikum fyrir milligöngu Stafræns Íslands.
Umsóknir um sérstök útgjöld geta verið erfitt og íþyngjandi ferli. Því færi betur á, í samræmi við tækniframfarir, að umsækjandi gæti samhliða því að leggja fram kröfur um sérstök útgjöld veitt sýslumanni heimild til gagnaöflunar hjá öðrum stjórnvöldum sem málið varðar.
Ég tel óþarfa að lengja mál mitt frekar hér og vona að hv. nefnd taki málið til umfjöllunar og kalli eftir umsögnum. Mér skilst að það sé allsherjar- og menntamálanefnd. Verði málið samþykkt hér legg ég til að því verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar.