greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti vill geta þess, af því að hv. þingmaður vitnar hér til 16. gr. laga um Ríkisendurskoðun, að um gögn af því tagi sem hér um ræðir er líka fjallað í 15. gr. laga um Ríkisendurskoðun. Þar hefur komið fram af hálfu Ríkisendurskoðunar að skilningur hennar er sá að þarna sé um að ræða vinnugagn sem beri að lúta sérstökum trúnaði eða leynd á grundvelli ákvörðunar ríkisendurskoðanda. Þess má líka geta að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur a.m.k. þrívegis fjallað efnislega um sambærilegar beiðnir og þær sem legið hafa fyrir forsætisnefnd um aðgang að þessu skjali og hefur í öllum tilvikum talið að 15. gr. laga um Ríkisendurskoðun ætti þar við þannig að afhending sé ekki heimil. Þetta skýrir að einhverju leyti þann lögfræðilega ágreining sem uppi hefur verið um þessi efni.