153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er sett á dagskrá býsna viðkvæmt mál, sem er staða barna í landinu með tilliti til þess hvernig þau komast af. Við höfum ýmist verið að ræða um þennan málaflokk út frá hlutfallslegri fátækt eða raunverulegri fátækt. Það er mikið gleðiefni að börn á Íslandi eru almennt séð, í samanburði við börn annars staðar í heiminum, miklu, miklu betur komin. Nú eru tölur um það að staðan milli þessara tímabila, sem hv. þingmaður vekur athygli á, sé ekki að þróast á réttan hátt hjá okkur og við þurfum þá að greina hvað er þar að baki vegna þess að við vitum að kaupmáttur heimilanna hefur verið að þróast á réttan hátt. Þegar heimsfaraldur reið yfir þá tókst ríkisstjórninni t.d. að búa til þannig skjól að kaupmáttur þeirra sem eru með minnstar tekjur á Íslandi fór mest vaxandi. Nú geta menn sagt sem svo að það dugi engin meðaltöl og þau gagnist ekki þeim sem eru neðst í tekjustiganum þó að aðrir hafi það ágætt o.s.frv., en þetta eru engu að síður upplýsingar sem segja til um það hvernig okkur gengur heilt yfir. Hv. þingmaður spyr hvað ég sem fjármálaráðherra sé einkum að gera í þessu efni; það er einmitt að horfa á þessa heildarhagsmuni. Svo getum við rætt um það hvernig staðan kemur út fyrir einstaka hópa og ég hef beitt mér fyrir því að við eigum aðgengilegar upplýsingar um þessa stöðu til að geta gripið til aðgerða þegar þess gerist þörf. Síðasta aðgerð sem ég beitti mér fyrir og flutti hingað fyrir þingið var einmitt að hækka barnabætur.