153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[15:34]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir stórfurðulegt svar því ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Þetta er alveg með hreinum ólíkindum. Það að börn séu til í heiminum sem líða skort og deyja úr hungri og séu í mun fátækari löndum en við, réttlætir þá það, hæstv. ráðherra, að fátækt barnanna okkar skuli fara vaxandi og á þinni vakt, hæstv. ráðherra, um ríflega 4% á fimm árum? Þau eru núna rúmlega 10.000. Og hvað þýðir það að vera að velta vöngum yfir hinu og þessu og góna úr sér augum ef aðgerðirnar eru nánast engar? Það þarf aðgerðir, hæstv. ráðherra. Það er of mikið talað hér og malað og hlutirnir eru látnir drabbast of mikið niður án þess að það sé gripið til aðgerða til að bæta stöðu þeirra sem bágast hafa það í samfélaginu. Er það virkilega svo að hæstv. ráðherra sé aðallega að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem allt eiga á kostnað hinna sem lepja dauðann úr skel?