153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

fátækt barna á Íslandi.

[15:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þegar hv. þingmaður segir að það dugi ekkert að tala þá segi ég bara á móti: Það dugar ekkert að tala hátt. (IngS: Víst.) Það dugar ekkert að æsa sig hér í ræðustól og þykjast með þeirri framkomu slá út af borðinu grjótharðar staðreyndir sem ég er að tefla hér fram, sem eru um það að okkur hefur tekist á undanförnum árum að bæta lífskjörin svo um munar. Síðasta breyting sem sneri sérstaklega að barnafólki, fjölskyldum með börn, var sú að stórbæta barnabótakerfið, hækka bæturnar og gera kerfið sjálft réttlátara, t.d. þannig að barnabætur skiluðu sér miklu fyrr á árinu. (IngS: Af hverju vex þá fátæktin?) Það er alger útúrsnúningur og reyndar alveg ótrúlega ómerkilegur málflutningur að halda því fram að með því að vekja athygli á því að við hér á Íslandi höfum byggt upp samfélag þar sem börn njóta lífsgæða sem eru með því besta sem gerist í heiminum, að með því sé ég að reyna að réttlæta þessa þróun sem hv. þingmaður er að setja hérna á dagskrá. Ég bara frábið mér svona málflutning.