kostnaður við lögfræðiráðgjöf vegna sölu ríkiseigna.
Forseti. Í grein Fréttablaðsins frá því um daginn kemur fram að fjármálaráðuneytið hefur frá árinu 2016 greitt Íslögum, lögfræðiskrifstofu Steinars Þórs Guðgeirssonar, meira en 181 milljón auk virðisaukaskatts. Ég var með fyrirspurn árið 2018 til hæstv. fjármálaráðherra þar sem ég spurði um kostnað við ráðgjafarþjónustu til ráðuneyta og stofnana og þar kemur dálítið áhugavert fram, eða í rauninni vantar. Í fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að á árinu 2016 hafi Íslög fengið 56,5 millj. kr. og á árinu 2017, 48 millj. kr. En í gögnunum sem ég fékk, í svari við fyrirspurn minni, í þingskjölum, koma þessar tölur ekki fram, þær vantar. Það sést mjög greinilega í fyrirspurn Fréttablaðsins til fjármálaráðuneytisins að fjármála- og efnahagsráðuneytið tekur við þessum lögfræðikostnaði þegar starfsemi Lindarhvols lýkur, enda er það fjármála- og efnahagsráðuneytið sem á þetta félag með húð og hári. Því finnst mér áhugavert að sjá að árið 2017 er einungis gerð grein fyrir lögfræðikostnaði upp á 6,5 milljónir en ekki upp á 48 milljónir í viðbót og á árinu 2016 upp á 9,7 milljónir en ekki 56,5 milljónir í viðbót. Hvernig stendur á því að fjármála- og efnahagsráðuneytið getur sett upp eitthvert ehf. til að fela lögfræðikostnað sem ríkið er í rauninni að greiða fyrir sölu á hlutum ríkisins, á ríkiseignum? Hvernig getur það gerst?