153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

kostnaður við lögfræðiráðgjöf vegna sölu ríkiseigna.

[15:46]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki alveg á þessari fyrirspurn. Hér er í fyrsta lagi vísað í frétt í Fréttablaðinu sem er bara einfaldlega efnislega röng. Hún er ekki bara röng í einu atriði heldur mörgum. Hér undir lok fyrirspurnarinnar spyr hv. þingmaður: Hvernig getur það gerst að fjármála- og efnahagsráðuneytið kemur á fót félagi til að annast þessi verkefni? Það getur t.d. gerst með því að Alþingi ákveði það með lögum. Það var Alþingi sem ákvað (Gripið fram í.)og samþykkti sérstök lög um það að koma á fót félagi sem heitir Lindarhvoll. Það félag hefur greitt bróðurpartinn af öllum þessum reikningum. Þar var fyrirkomulagið að þar var enginn starfsmaður en í reynd framkvæmdastjóri sem skilaði reikningum til félagsins í samræmi við vinnuframlag, allt ákveðið af stjórn félagsins. Þetta eru svörin eins og ég skil spurningarnar og ætti að vera alveg ljóst að það var ekkert að svörunum sem fjármálaráðuneytið skilaði hv. þingmanni um aðkeypta þjónustu vegna þess að þau vörðuðu ráðuneytið sjálft.