153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

loftslagsgjöld á millilandaflug.

[15:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Er ekki hæstv. ráðherra í raun að segja að ef þær undanþágur sem nauðsynlegar eru fást ekki verði innleiðingunni hafnað, hvort sem það verður með beitingu 102. gr. EES-samningsins eða hver sem nálgunin verður? Það skiptir máli fyrir okkur vegna þess hve tíminn er að verða knappur í málinu að afstaða stjórnvalda liggi fyrir. Við sjáum t.d. bara fyrirtæki sem hæstv. ráðherra heldur á hlutabréfunum í; Isavia ohf. áformar 100 milljarða uppbyggingu í Keflavík sem engin þörf verður fyrir fari þetta á versta veg, sem auðvitað getur ekki gerst á endanum. Enginn ábyrgur stjórnmálamaður myndi leyfa þessu að gerast. En eftir þessa 100 fundi, bréf hæstv. forsætisráðherra sem Ursula von der Leyen svaraði með þeim hætti að menn þori ekki að sýna viðbrögðin, þá er ótti í umhverfinu við svona veikluleg viðbrögð stjórnvalda. Ég vil þess vegna aftur spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann sé ekki (Forseti hringir.) í raun að segja að innleiðingunni verði hafnað ef viðhlítandi undanþágur fást ekki frá því.