einkarekstur og aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk óttast að samhliða stóraukinni útvistun læknisaðgerða til einkaaðila muni Landspítalinn og aðrar heilbrigðisstofnanir missa enn frekar frá sér starfsfólk sem sæki í betri kjör á einkareknum stofum. Fjármunir sem annars rynnu til aðgerða á tómum skurðstofum hjá opinberum heilbrigðisstofnunum renni til annars og dýrara kerfis utan þeirra. Eins og haft var eftir einum lækni í Heimildinni með leyfi forseta: Tilfinningin er sú að það sé verið að svelta okkur til að glæða einkaframtakið.
Ég get varðandi útvistun aðgerða til einkaaðila tekið undir með Runólfi Pálssyni, forstjóra Landspítala, um að mikilvægt sé að aðeins verði samið við einkaaðila til ákveðins tíma til að minnka biðlista en ekki sé verið að búa til nýtt kerfi byggt á einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Meiri hluti þjóðarinnar vill standa vörð um og efla opinbera heilbrigðisþjónustu.