153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:51]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki að fallast á þetta vegna þess að þrátt fyrir að málið hafi verið rætt mikið og það hafi verið kallaðir til gestir fyrir nefndina á fyrri stigum þá fengu gestir ekki að tjá sig um þessar tilteknu breytingar, hvaða afleiðingar yrðu af þessum tilteknu breytingum á tiltekinn hóp fólks. Vissulega er rétt að það var boðið upp á ráðuneytið í því en auðvitað hefðum við miklu frekar viljað spyrja þá sem vinna með fólkinu, sem eru að þjónusta fólkið sem í þessari stöðu er, um hvaða áhrif þessar breytingar hefðu haft. Þannig að það er auðvitað ekki hægt að fallast á það að þetta hafi verið vel unnið af meiri hlutanum.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort skýringin sé ekki miklu frekar sú að það stangaðist verulega á hvað fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og VG sögðu um það hvað ætti að gerast inni í nefndinni á milli umræðna og þegar það birtust allt í einu viðtöl við ráðherra þar sem boðaðar voru miklar efnisbreytingar fáeinum dögum áður en málið var tekið út var hlaupið upp til handa og fóta og kastað í einhverjar nokkrar breytingartillögur sem virðast vera, sumar hverjar a.m.k., einfaldlega til þess að VG líði eitthvað pínulítið betur með þetta mál og eru satt best (Forseti hringir.) að segja algjör sýndarmennska, sumar hverjar.