útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og ég rakti hér í minni ræðu þá lýtur veigamesta breytingin í þessu frumvarpi að þessum 30 daga fresti. Svo ég fari aðeins yfir það stuttlega þá hafa þeir sem hafa fengið neitun og er gert að yfirgefa landið, og eru þar með orðnir ólöglegir í landinu, 30 daga til að yfirgefa landið. Eftir það fellur þessi þjónusta niður. Það er ekki þannig í dag. Við þekkjum það. Þjónustan heldur áfram þó að viðkomandi sé ólöglegur í landinu. Þetta ákvæði eitt og sér hefur í för með sér ákveðin skilaboð og ég tel persónulega að í því felist ákveðin skilaboð þess efnis að þú veist að ef þú færð hér neitun þá þarft þú að yfirgefa landið og þú færð ekki þessa þjónustu sem er í boði. Í dag veistu að ef þú kemur til Íslands og færð neitun þá færðu samt sem áður þjónustuna, þú færð samt sem áður framfærslu og svo húsnæði og þetta er metið á um 300.000 kr. á mánuði á einstakling. (Forseti hringir.) Það eitt og sér eru ákveðin skilaboð. (Forseti hringir.) Í þessum málaflokki skipta skilaboð um það hvernig þjónustan er (Forseti hringir.) og hvernig henni er háttað að sjálfsögðu máli. (Gripið fram í: Félagsmálaráðherra er með önnur skilaboð, sveitarfélögin eiga að reyna að taka þá fasta.)(Gripið fram í.)