útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég hef verið sökuð um mikinn dónaskap í meðförum þessa máls í allsherjar- og menntamálanefnd og annars staðar þegar ég annars vegar kallað þetta frumvarp fúsk, sem ég tel það vera og held bara áfram þeim dónaskap, og hins vegar þegar ég nota orðið sem öllum finnst rosalega sárt að heyr en ég segi af fullri einlægni; óheiðarleiki. Skýringarnar sem koma frá dómsmálaráðuneytinu á þessu máli, sem ég skil vel að hv. þingmenn taki og trúi, eru í mörgum tilvikum óheiðarlegar að mínu mati. Hvers vegna segi ég það? Vegna þess að það eru útúrsnúningar og það er verið að tala um hluti sem eiga ekki við það sem verið er að tala um. Þá langar mig til að nefna sem dæmi 15. gr. frumvarpsins sem skerðir réttindi hinsegin kvótaflóttafólks, skerðir möguleika þeirra til að flytja með sér maka sem þau giftast á leiðinni. Það var staðfest á fundi með ráðuneytinu. Þetta var staðfest, þau sögðu: Já. Við hv. þm. Orri Páll Jóhannsson höfum átt þetta samtal (Forseti hringir.) og hann veit það t.d. Þetta er skýrt. (Forseti hringir.) Þetta er ekki bara mín kenning. Í umsögnum ráðuneytisins segir að þetta ákvæði sé ívilnandi. Þetta ákvæði er ekki ívilnandi. Það sem þau eru að tala um þar (Forseti hringir.) er eitthvað sem kemur fram í 13. gr. frumvarpsins sem segir að þegar fólk fær fjölskyldusameiningu og er flóttafólk þá fær það stöðu flóttamanns en ekki mannúðarleyfi. (Forseti hringir.) Það er þannig reyndar í framkvæmd nú þegar, en við erum bara að árétta það í lögunum. Með þessu halda þau því fram að 15. gr. sé ívilnandi. (Forseti hringir.) Hún er það ekki. Hvað er þetta annað en óheiðarlegt? — Frú forseti. Ég biðst afsökunar.