útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir góða spurningu. Lögin sem við erum að breyta hér, lög um útlendinga, nr. 80/2016, voru unnin af þverpólitískri nefnd í góðu samráði við sérfræðinga. Rauði krossinn var engu að síður með margra blaðsíðna athugasemdir við það frumvarp og hefði viljað hafa ákveðna hluti öðruvísi. Þetta er í rauninni ágætismálamiðlun og þetta var vel unnið og það var hlustað. Það voru gerðar margar mjög góðar og gagnlegar breytingar á löggjöfinni á Íslandi sem leiddu raunverulega til meiri skilvirkni. Þetta votta tölur frá kærunefnd útlendingamála t.d. Hins vegar þá hefur þessum lögum verið breytt síðan þau voru sett og það ekki bara einu sinni eða tvisvar, þeim hefur verið breytt 18 sinnum. Misstórar breytingar og í mismunandi samhengi en verið tiltölulega mikil sátt um þær breytingar sem hafa verið gerðar. Þetta frumvarp, sem hér er verið að reyna að troða í gegnum þingið í fimmta skipti — sem hefur blessunarlega verið rekið til baka fjórum sinnum, því miður tókst það ekki í þetta skiptið með miklum vonbrigðum margra aðila — snýst um allt aðra hluti. Það snýst ekkert um að bæta skilvirkni í þessum málaflokki, líkt og ég hef farið hérna yfir. Þetta eru ekki þarfar breytingar. Nei, þær eru það ekki. Þær munu ekki leysa vandamál, þær munu ekki auka skilvirkni. Það er þess vegna sem það er verið að mótmæla þessu. (Forseti hringir.) Við viljum öll bæta skilvirkni í málaflokknum. (Forseti hringir.) Móttaka þúsunda flóttamanna frá Úkraínu hefur sýnt það (Forseti hringir.) að við þurfum ekki að gera lagabreytingar til að laga kerfið hérna. (Forseti hringir.) Það má alveg snyrta þessi lög til en þetta er ekki leiðin og það er ekki þörf á að gera það í dag.