útlendingar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég get ekki tekið undir mikið af því sem þar kom fram og ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur um gengisfellingu orðsins ofbeldi. En mig langar til að spyrja, af því að við höfum talað mjög lengi um þetta mál. Frumvarpið er að koma fram í fimmta skipti og hefur tekið breytingum síðan það var fyrst lagt fram. Það hefur tekið breytingum milli 1. og 2. umr. og tekið breytingum á milli 2. og 3. umr. Nú komu fram mjög ákveðin skilaboð í þeim umsögnum sem við fengum, t.d. er varðar nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og svo langar mig að nefna líka vottorðin. Á fyrri stigum þessa máls, ekki í þessari umræðu heldur þegar það var lagt fram áður, var augljóst að tilgangurinn var að fara í þvingaðar líkamsrannsóknir. (Forseti hringir.) Skiptir í alvörunni engu máli að það sé búið (Forseti hringir.) að taka á þessu og er það hvítþvottur?