Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:09]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér geysist upp hver lögfræðingurinn á fætur öðrum og heldur fram sannleikanum í þessum málum, ekki bara í þessu máli heldur mörgum öðrum. Hv. þingmaður sem hér talaði er í þeim flokki og hún hélt því fram að kærunefnd útlendingamála væri að heimila fólki frá Venesúela að dvelja hér vegna efnahagslegrar stöðu þar. Það þarf nú ekki að gúgla mikið til að átta sig á hinni raunverulegu stöðu í Venesúela sem er alls ekki bara sú að þar sé fátækt. Það er fátækt víða. Það er fátækt á Íslandi. Festir sem hafa flúið Venesúela hafa ekkert flúið til Íslands. Festir sem hafa flúið frá Venesúela búa í ríkjunum í kringum Venesúela, en það er vegna þeirrar ógnarstjórnar sem ríkir í Venesúela. Staðan er bara stórhættuleg í Venesúela. Þar eru dauðasveitir sem eru gerðar út af stjórnvöldum til að taka af lífi eða fangelsa fólk sem lýsir andstæðri skoðun við stjórnvöld. Þess vegna finnst mér sérstakt að hlusta á það að hér séum við að taka við fólki frá Venesúela af því að það er að leita sér að betra efnahagslegu lífi. Ég átta mig ekki á því hvað hv. þingmaður er að fara. Þessar dauðasveitir eru búnar að drepa yfir 20.000 manns á síðustu fimm árum í Venesúela. Það er bara mergur málsins. Ég lýsi því yfir hér: (Forseti hringir.) Ég skal vera í liði með hv. þingmanni til þess að vinna gegn fátækt á Íslandi (Forseti hringir.) en við skulum ekki skilja fólk eftir út undan.