útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir þetta. Ég var auðvitað ekki bara að spyrja út frá þeirri tillögu sem hv. þingmaður var hér að mæla fyrir heldur líka út frá ræðunni sem flutt var þar sem komið var inn á þá hluti sem ég nefndi hér í mínu fyrra andsvari. Við getum auðvitað ekki sett hlutina þannig upp að þær sjö milljónir, eða hvað það er, sem eru á flótta frá Venesúela, að þetta sé allt fólk sem er bara að flýja bágan efnahag. Það er auðvitað ekki þannig. Og það er auðvitað ekki rétt að halda því fram að þeir sem eru einhvern veginn á móti frumvarpinu, eða á móti þessari hugmynd sem hv. þingmaður nefnir, vilji hafa opin landamæri. Við erum bundin af ákveðnum alþjóðlegum sáttmálum. Lögin eins og þau eru eru um margt ágæt þó að framkvæmd laganna sé ekkert sérstaklega góð og það er bara einfaldlega þannig að þegar við erum bundin af alþjóðlegum sáttmálum, flóttamannasamningnum og öðru, þá gilda um þetta ákveðnar reglur. Það er ekki þannig að hér sé stór hópur fólks að misnota hælisleitendakerfið. Það eru engar tölur sem sýna fram á það. Við höfum ítrekað kallað eftir tölum um þetta, bæði frá lögreglu og víðar að, en aldrei fengið neitt handfast. Það er alltaf verið að kasta því fram í umræðunni að hér sé fólk í stórum stíl að misnota hælisleitendakerfið. Tölurnar sýna hins vegar ekkert sérstaklega fram á það.
Þannig að: Nei, ég aðhyllist ekki alveg opin landamæri. Ég held að regluverkið sem við erum með í dag — eins og það er áður en það útlendingafrumvarp sem hér er verður samþykkt, sem væntanlega verður gert — sé um margt ágætt og það er svo sannarlega ekki verið að gera ráð fyrir opnum landamærum þar.
Ég skal hins vegar halda því fram fullum fetum að þetta frumvarp, hvort sem breytingartillaga hv. þm. Ingu Sæland verður inni í því eða ekki, muni ekki á neinn hátt draga úr því sem menn kalla eitthvert meiri háttar stjórnleysi hér á Íslandi í þessum málaflokki. Ástandið mun ofureinfaldlega verða nokkuð svipað eftir sem áður, (Forseti hringir.) einfaldlega vegna þess að þetta frumvarp tekur á svo afskaplega takmörkuðum hópi þeirra sem hingað koma. (Forseti hringir.) Flestir koma frá Úkraínu og Venesúela eins og hér er verið að breyta.