153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

Störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er víst þannig að merkin dæma verkin og þegar kemur að loftslagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar þá eru verkin ófullnægjandi. Aðgerðirnar, markmiðin, allt sem þessi stjórn stendur fyrir í loftslagsmálum dugir ekki til að ná þeim árangri sem við verðum að ná. Þetta birtist síðastliðið haust þegar bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar sýndu að losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 3% á milli áranna 2020 og 2021 — jókst, forseti. Á sama tíma og hún á að vera að dragast saman ár frá ári þá jókst hún um 3% vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

Svo fengum við fyrir nokkrum vikum fréttir um að heimilisúrgangur hefði á sama árabili aukist um 9% en hann, alveg eins og gróðurhúsalofttegundirnar, á að vera að minnka ár frá ári. Aftur er aðgerðaleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um að kenna.

Og hvað kemur síðan í ljós þegar Samtök iðnaðarins leggjast yfir tölurnar? Við höfum séð það í fréttunum síðustu daga. Það stefnir í metár í innflutningi á jarðefnaeldsneyti. Þegar ríkisstjórnin er í fimm ár búin að vera að monta sig af því að vera metnaðarfyllst í heimi í loftslagsmálum þá er þetta ár, 2023, að verða metár í því að flytja inn mengandi eldsneyti. Aðgerðaleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur enn og aftur.

Ísland færist fjær þeim markmiðum sem við þurfum að setja okkur. Ísland er í þveröfugri þróun miðað við það sem nauðsynlegt er. Ríkisstjórnin verður að hætta, ekki aðgerðaleysinu heldur þeirri þvermóðsku (Forseti hringir.) sem einkennir allt í kringum loftslagsmál. Hún verður að fara að setja áætlanir, hún verður að fara að sýna markmið, hún verður að fara að (Forseti hringir.) grípa til einhvers af því sem hún sagði fyrir 18 mánuðum þegar hún var stofnuð að hún myndi gera. En enn í dag hefur (Forseti hringir.) hæstv. umhverfisráðherra ekki mætt til þingsins með eitt einasta uppfærða markmið, ekki eina einustu nýju áætlun. Framtíðin þolir ekki þessa töf.