153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

Störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Vinstri grænir halda flokksþing næstu helgi á Akureyri og finnst mér því tilvalið að nesta vini mína sem halda til þingsins þannig að þeir geti notað tækifærið og komið að einhverju leyti viti fyrir ráðherra flokksins en það var að heyra hér á hv. þm. Jódísi Skúladóttur að það væri greinilega mikil undirliggjandi gremja í garð þeirrar stjórnarstefnu sem er rekin. (Gripið fram í: Nei, nei.) Það er engu líkara en að ráðherrar Vinstri grænna geri bara allt fyrir stólana nema kannski að koma naktir fram. Ég veit ekki hvað verður næst. Hefði einhver trúað því að hæstv. forsætisráðherra, sem gekk til stjórnarsamstarfs með Framsókn og Sjálfstæðisflokknum undir þeim formerkjum að ætla að efla traust á stjórnkerfinu, auka gagnsæi og koma ýmsu góðu til leiðar, myndi vera hér í marsmánuði í þeim verkum að halda leynd yfir skýrslu sem varðar mikilsverða hagsmuni. Það er alveg kristaltært að hún er ekki að þjóna hagsmunum almennings. Það er alveg kristaltært. En mögulega fær hún að halda í litla stólinn sinn fyrir það að gera allt annað en hún boðaði hér í upphafi þegar hún tók við starfinu. Það hlýtur sömuleiðis að vera átakanlegt fyrir Vinstri græna, almenna flokksmenn, að horfa upp á það hvernig matvælaráðherra setur af stað vinnu í málaflokknum og helsta afurð þeirrar vinnu í margra blaðsíðna skýrslu, liðlega 200 blaðsíðna, er að gera lítið úr stefnu Vinstri grænna (Forseti hringir.) og lögð sérstök áhersla á að sverta strandveiðar. Ég tel að þetta verði (Forseti hringir.) mjög áhugavert þing á Akureyri um næstu helgi og ég mun fylgjast með.