153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

Störf þingsins.

[14:06]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við búum nú við hæstu vexti frá hruni og allt útlit er fyrir að þeir verði hækkaðir aftur í næstu viku þar sem síðustu verðbólgumælingar sýndu að verðbólga er enn að aukast. Á sama tíma horfumst við í augu við sögulegan hallarekstur og skuldasöfnun ríkisins. Það eitt og sér eykur verðbólgu og viðheldur henni. Síðan hlýtur maður að spyrja sig hvers vegna gengi krónunnar hafi fallið á tímabilinu frá því að Seðlabankinn byrjaði að hækka vexti. Ætti ekki að vera eitthvert samhengi þar á milli? Er ekki eitthvað sem vantar í þessa breytu? Það að við séum með margfalda vexti á við samanburðarlönd ætti í raun að auka áhuga þeirra sem þurfa að ávaxta sína fjármuni til að fjárfesta í íslensku vaxtaumhverfi. Fjárfestar starfa núorðið á stórum markaði um allan heim og leita sífellt leiða til að koma fjármunum í vinnu. Þá er auðvitað horft til þess hvar bestu ávöxtun er að fá. Maður skyldi því ætla að áhugi erlendra fjárfesta á Íslandi myndi aukast. Ef slíkur áhugi væri fyrir hendi og erlendir aðilar kæmu inn með fjárfestingar í íslenska vaxtaumhverfið þá kæmi það í veg fyrir að krónan félli. Það ætti í raun að styrkja hana. En þetta hefur allt saman brugðist. Erlendir fjárfestar virðast ekki hafa neinn áhuga á íslenskri fjárfestingu og það er vel hægt að skilja það. Þeir eru brenndir eftir íslenska efnahagshrunið og þá útreið sem þeir fengu í framhaldinu. Niðurstaðan er því sú að erlendir fjárfestar hafa ekki lengur trú á fjárfestingu í íslensku krónunni og íslensku vaxtaumhverfi. Eftir situr íslensk þjóð með hækkandi vexti og fallandi gengi krónunnar.