útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina. Kannski er ágætt að hann búi að reynslunni úr leikhúsinu af því að allt í kringum þetta mál af hálfu stjórnarmeirihlutans er einhvers konar leiksýning, leiktjöld, uppsetning á einhverju plati. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það hvernig breytingartillögur meiri hlutans gera ekkert annað en að færa í orð hluti sem nú þegar eru í lögum þannig að það er engin efnisleg breyting í þessum tillögum að heitið getur. Þetta er allt saman „skuespil“ til að þjóna einhverjum tilgangi í flokksmaskínu þeirra sem enn þá, alla vega í orði kveðnu, vilja segjast standa með mannúðinni.
Mig langar að spyrja út í kafla í nefndaráliti meiri hlutans varðandi stöðu hinsegin kvótaflóttafólks og möguleika þess til fjölskyldusameiningar, sem í frumvarpstextanum segir að verði skrúfað fyrir, en meiri hlutinn vill bara benda á að íslensk stjórnvöld hafi lagt áherslu á að taka á móti hinsegin kvótaflóttafólki (Forseti hringir.) og að vonandi verði fólk með hinsegin gleraugun á þegar það vísar fólki úr landi í framtíðinni. (Forseti hringir.) Af hverju er engin árétting á því einu sinni að standa vörð um stöðu þessa fólks frá meiri hlutanum?