útlendingar.
Virðulegur forseti. Takk fyrir þetta svar. Ég er svolítið upptekinn af því sem heitir fyrsta griðland, sem mér finnst vera merkilegt. Dyflinnarreglugerðin hefur virkað eins og það sé heimilt að fara eftir henni, en þarna er eins og það sé bara orðið undantekningarlaust að fólk sé sent úr landinu ef við getum notað þessa Dyflinnarreglugerð. Hér er verið að ræða flóttamannasamninginn og að það sé nauðsynlegt að fara eftir honum. Það sé ekki endilega nauðsynlegt að ríkin séu hluti af þessum flóttamannasamningi en við ætlum þó að fylgja því eftir og sjá til þess að ríkið framfylgi þessum flóttamannasamningi áður en við sendum fólk þangað. Svo fannst mér ég einhvern veginn getað heyrt það að við ætlum hreinlega senda fólk bara eitthvert, ef okkur finnst í lagi að senda fólk eitthvert: Hann er svona á litinn, þá sendum við hann bara þangað, eða hann er svona í laginu, þá sendum við hann bara þangað. (Forseti hringir.) Þannig að ég er einhvern veginn að upplifa þetta þannig að þetta sé algerlega opið upp á gátt.