153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:43]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ef ég skil þetta rétt þá snýst stefnan fyrst og fremst um að leyfa fólki að taka þátt í atvinnulífinu því að þá leysist öll önnur mál sjálfkrafa. En það er nú bara þannig að ef menn horfa til reynslu Norðurlandanna, hvort sem það er til Danmerkur eða Svíþjóðar, þá er annað mál sem kemur upp, þ.e. það að myndast hliðarsamfélög. Hér gagnrýnir, finnst mér, Samfylkingin systurflokk sinn í Danmörku með óvægnum hætti. Það sem danskir jafnaðarmenn hafa gert er að þeir hafa alla vega viðurkennt vandann og ákveðið að takast á við hann. Það er ekki gert af neinni mannvonsku heldur í rauninni til að halda líminu í dönsku samfélagi. Ég held að það sé jafnvel eitthvað sem sænskir jafnaðarmenn, ef ég skoða umræðuna í Svíþjóð, eru farnir að horfa til. Þannig að ég skora bara á Samfylkinguna að horfa á stefnu danska systurflokksins (Forseti hringir.) með opnari og jákvæðari augum en virðist vera hér.