153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:44]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það heldur því enginn fram að með því að gera eitt þá leysist öll önnur heimsins vandamál. Það er auðvitað ekki þannig. Við erum hluti af heimsbyggðinni, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Og ef það er stefna Flokks fólksins að loka hér landamærunum, eins og formaður flokksins hefur svo sem talað nokkrum sinnum fyrir hér á síðustu árum, þá er ég ekki viss um að það væri vænlegt til árangurs. Ég er ekki viss um að þeir einstaklingar sem Flokkur fólksins kveðst alla vega í orði tala fyrir, þ.e. þeir sem eru efnaminni, muni græða mikið á því ef hagvöxtur hrynur hér vegna þess að landamærin eru lokuð að öllu leyti. Ég er ekki viss um að það sé í þágu almennings á Íslandi eða íslensks efnahagslífs.

Varðandi stefnu danskra sósíaldemókrata þá held ég að þeir hafi klikkað algjörlega á því sem heitir aðlögun, að bjóða fólk velkomið, að senda fólk ekki í einhvers konar einangrun. Ég held að við getum lært mikið af því að fara ekki þá leið.