útlendingar.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á því að þakka þingmönnum sem sitja með mér í hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir samstarfið á þessum þingvetri þar sem þetta mál sem við ræðum hér hefur verið algerlega undirliggjandi strax frá upphafi þingvetrarins, þegar við fórum í okkar ferð til Danmerkur og Noregs til að fræðast m.a. um þennan málaflokk, og svo á yfir 15 fundum þar sem við höfum tekið á móti gestum. Við höfum tekið á móti öllum þeim gestum sem hafa óskað eftir að koma fyrir nefndina, eða óskir hafa komið um, og sumir þeirra hafa komið oftar en einu sinni.
Það er samt alveg ljóst af þeirri umræðu sem fer hér fram núna í 3. umr., og ekki síður af því sem fór fram í 2. umr., að það er einfaldlega þannig að ákveðnir flokkar hafa bara ákveðið að vera á móti breytingum á útlendingalögum. Ég get borið virðingu fyrir því. Við erum í lýðræðisríki og hér eigum við auðvitað að skiptast á skoðunum um hvað fólki finnst. Mér finnst alveg skýrt að Píratar hafa talað fyrir því að það eigi ekki að gera breytingar og jafnvel talað fyrir því að það ætti að opna enn frekar landamærin okkar. Og eins og ég held að hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir hafi einhvern tímann orðað það þannig að í staðinn fyrir að nota peninga í þetta kerfi þá eigi auðvitað bara bjóða alla velkomna. Það er sjónarmið. Ég get alveg skilið þetta sjónarmið. Ég á aftur á móti erfiðara með að átta mig á því hver afstaða systurflokkanna Samfylkingar og Viðreisnar er þegar kemur að þessum málum, þ.e. sýninni á útlendingamálin. Þegar við klárum umræðu um þetta frumvarp hér, sem ég tel ofboðslega mikilvægt og löngu tímabært að við klárum, þá vil ég ítreka að umræðan um útlendinga er ekkert að fara frá okkur. Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum, aldrei hefur verið jafn mikil færsla á fólki um heiminn allan og þetta er risastórt viðfangsefni sem ég vil að við vinnum vel. Ég vona svo innilega í áframhaldandi umræðu um móttöku fólks, um skóla og aðlögun og allt þetta, að við getum náð meiri samhljómi en við höfum náð hér í umræðu um þetta frumvarp.
Ég ætla að ítreka það, vegna þess að það hefur ýmsu verið haldið fram um vinnuna í nefndinni, að ég hef lagt mig fram við að verða við öllum beiðnum um gestakomur og margir gestir hafa komið oftar en einu sinni. Það er vísað í það þegar við tókum málið aftur út til 3. umr., að á þeim fundi hafi Rauði krossinn verið gestur fyrr um morguninn og farið yfir skýrslu sem fjallar um fólk í umborinni dvöl, eins og þau hafa ákveðið að orða það, sem er hópur fólks sem er hér á landi þrátt fyrir að hafa fengið synjun. Þetta er viðfangsefni bæði fyrir okkur og lönd víða í Evrópu. Ég hef þá skoðun að þær breytingar sem við erum að gera hér með þjónustuskerðingu muni hafa þau áhrif að fleiri fari til síns heima. Þeir sem af einhverjum ástæðum geta það ekki vegna pappíranna eða annars falla undir undanþáguákvæðið. Ég hef því ekki stórkostlegar áhyggjur af þessu eins og margir þingmenn hafa hér lýst. Aftur á móti ítreka ég: Málið er ekki farið frá okkur og það kann vel að vera að við munum á næstu árum þurfa að ræða það hvort við þurfum að beita sömu leiðum og öll hin löndin í Schengen-samstarfinu okkar, öll hin Norðurlöndin, þ.e. að vera með sérstakar endursendingarbúðir. En ég vona að þær breytingar sem hér eru séu nægar til þess að bregðast við þessu ástandi. Þannig að þó að Rauði krossinn hafi komið og kynnt skýrslu sem staðið hafði til í svolítinn tíma þá vil ég minna á það að Rauði krossinn kom tvisvar áður sem gestur við umfjöllun á málinu og er með tvær umsagnir um málið.
Einnig fengum við til okkar ungt og öflugt fólk sem fer fyrir hópnum Fellum frumvarpið. Þau óskuðu eftir að koma til fundar og það kom ósk frá þingmönnum um að við myndum bjóða þau til fundar. Ég fagna því ávallt þegar við í þingnefndum Alþingis getum boðið ungu fólki að koma sem gestir til okkar. Ég held að það sé bæði mikilvægt fyrir okkur að fá að heyra þeirra raddir, en ekki síður fyrir þetta unga frambærilegt fólk að fá tækifæri til að koma fyrir þingnefnd. En ef stjórnarandstæðingar töldu að gestakoma frá hópi sem segir: Fellum frumvarpið, myndi hafa mikil áhrif á meiri hlutann þá er það ekki rétt. Það var alveg ljóst að samtal við þá sem ganga fyrir því að fella frumvarpið myndi ekki hafa veruleg áhrif á afdrif frumvarps sem slíks þó að samtalið hafi verið gott.
Mig langar hér, virðulegur forseti, aðeins að renna yfir nefndarálit meiri hluta sem hefur verið kallað alls konar nöfnum og greinilegt að það er bara töluverður pirringur í þessum sal yfir því að við séum að bregðast við ýmsu sem fram hefur komið hér í fyrri umræðu um málið. Það er nefnilega þannig að í öllum þessum rúmlega 100 ræðum, sem hafa verið fluttar, hafa oft verið málaðar upp einhverjar myndir um frumvarpið og það sem þar er og sagðar einhverjar sögur sem standast ekki. Þess vegna töldum við í meiri hlutanum mikilvægt að fara yfir þau ákvæði sérstaklega sem hafa komið hér til umræðu. Það eru kannski ekki margir sem hafa tekið það fyrir núna í 3. umr., en það var töluverð umræða um þetta varðandi sjálfkrafa kæru. Margir töldu það bara að brjóta mannréttindi fólks, að greinargerðarfresturinn væri allt of stuttur og þetta gæti allt saman bara verið hið allra versta mál. Þannig að hér er ítrekað að í þessum tilfellum erum við auðvitað bara að ræða þau mál þar sem synjað hefur verið um efnismeðferð á grundvelli 36. gr. laganna, sem eru þá fyrst og fremst verndarmál og Dyflinnarmál. Greinargerðarfresti frumvarpsins er ekki ætlað að takmarka rétt kæranda til að leggja fram viðbótargögn í málinu sem taka skal tillit til á meðan málið er til meðferðar hjá kærunefnd. Meiri hlutinn telur þessar breytingar skerði því ekki rétt umsækjenda til að leita réttar síns og bendir á að kærunefnd útlendingamála veiti viðbótarfrest til að skila greinargerð þegar þörf er á og óskað er eftir því og nánar er mælt fyrir um viðbótarfresti í verklagsreglum kærunefndarinnar. Við fengum líka kærunefndina á fund til okkar milli umræðna og var farið sérstaklega yfir þetta. Þannig að ég vona, og mér heyrist það líka á umræðunni hér, að það séu ekki lengur miklar áhyggjur af þessu ákvæði.
Þá langar mig að nefna hér vottorð frá heilbrigðisyfirvöldum. Það voru hér uppi miklar áhyggjur í einhverjum ræðum af því hvort þetta gengi ekki mjög á persónuvernd umsækjenda, hvort hér væri hreinlega verið að fara fram á þvingaðar læknisskoðanir, eða læknisskoðun, sem væru í óþökk þess sem fyrir skoðuninni verður. Svo er ekki og við ítrekum það hér að þetta ákvæði fjallar einungis um öflun vottorða sem byggja á heilbrigðisskoðun eða læknisrannsókn með samþykki útlendings eða fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar úr sjúkraskrá. Ef útlendingur sem aflað er vottorðs um hafnar heilbrigðisskoðun eða læknisrannsókn verður aldrei framkvæmd rannsókn gegn vilja viðkomandi enda ekki lagastoð fyrir því og það er ekki ætlunin að lögfesta slíkt með 4. gr. frumvarpsins.
Þá förum við aðeins yfir endurteknar umsóknir sem hafa líka verið mikið til umræðu. Margir vilja meina að 7. gr. sé með einhverjum hætti að skerða verulega rétt umsækjenda um alþjóðlega vernd og ganga á mannréttindi þeirra. Þannig að við ítrekum í nefndaráliti okkar að með þessari grein frumvarpsins er lagt til að endurteknum umsóknum verði að jafnaði vísað frá, enda er það ekki meining okkar að það sé eðlilegt að fólk geti lagt inn sömu umsóknina aftur og aftur í gegnum stjórnsýsluna. Að jafnaði skal vísa umsókninni frá nema ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrir umsókn.
Virðulegur forseti. Mér getur ekki fundist þetta orðið skýrara en nákvæmlega það sem segir þarna. Það var mikil umræða um þetta, sérstaklega við fulltrúa frá Alþjóðaflóttamannastofnuninni. Þá var alveg ljóst að það var líka ákveðið þýðingarvandamál sem við vorum að glíma við. Í umsögn þeirra stendur sem sagt á ensku „significantly increase the likelihood“ og áður hafði verið sagt, í fyrri frumvarpsdrögum „verulegar auknar líkur“. Sýnilega auknar líkur eru eitthvað minni en verulega auknar líkur. En það er alveg ljóst að ef fólk ætlar að fá umsókn sína tekna upp aftur með þeim tilkostnaði sem það hefur þá þarf það að sýna fram á viðbótargögn eða sýnilega auknar líkur á því að umsóknin fengi aðra meðhöndlun. Dæmisögur sem hafa verið nefndar af týndum tölvupóstum og öðru hljóta líka að vera nákvæmlega það; sýnilega auknar líkur um aðra niðurstöðu.
Meiri hlutinn leggur líka áherslu á að þau markmið sem ætlað er að ná með þessu ákvæði eru að koma á samræmdu verklagi og skýrari reglum varðandi endurteknar umsóknir um alþjóðlega vernd en tryggja jafnframt rétt einstaklinga til að fá umsókn sína tekna til skoðunar þegar ný gögn eða upplýsingar gefa tilefni til þess.
Þá ætla ég að nefna aðeins þetta varðandi fyrsta griðland og það sem hér hefur sagt: Senda fólk bara eitthvert. Það er algerlega kolröng niðurstaða sem fólk kemst að ef það les þetta ákvæði og les út úr ákvæðinu í 1. gr. að íslensk stjórnvöld muni taka upp á því að senda fólk bara eitthvert út af ákvæðinu um fyrsta griðland. (Gripið fram í: Við getum það ekki.) — Nei, að sjálfsögðu, hv. þingmaður, þá getum við það ekki og við viljum það ekki. Það er ekki það sem stendur til. Það er ekki það sem farið er yfir í þessu ákvæði. Í ákvæðinu er mælt fyrir um þau skilyrði sem stjórnvöld þurfa að leggja mat á og er m.a. vísað til þess að nauðsynlegt er að réttindi sem mælt er fyrir um í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna séu virt. Stjórnvöldum ber að meta hvert tilvik með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum og stöðu umsækjenda gagnvart viðkomandi ríki. Aftur: Auðvitað er ekki hægt að senda fólk bara eitthvert.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að m.a. skuli líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu við mat á því hvað teljist vera sanngjarnt og eðlilegt. Skýrt: Íslensk stjórnvöld eru ekki að fara að senda fólk bara eitthvert. Það er ekki það sem stendur í þessum lögum. Og hafi einhver vaðið í villu um það þá vona ég að nefndarálit þetta sé góð greinargerð með því að það er ekki það sem stendur til.
Virðulegur forseti. Nú er farið að ganga á tíma minn. Fjölskyldusameiningar hafa líka verið mikið til umræðu. Þess vegna ákváðum við að hnykkja frekar á því. Það er verið að leggja til ákveðna breytingu varðandi afleidda vernd. Á grundvelli 13. gr. frumvarpsins er lagt til að orðalagi ákvæðisins verði breytt á þá leið að þeir einir sem tengjast fjölskylduböndum þess einstaklings sem uppfyllir skilyrði 37. og 39. gr. laganna geti einnig fengið alþjóðlega vernd, en að einstaklingar sem tengjast þeim sem hlotið hafa þá þessa afleiddu vernd geti ekki byggt á því ákvæði. Það þýðir með öðrum orðum að verið er að koma í veg fyrir, ef ég leyfi mér að sletta, „spin-off“ á því, þannig að afleidd vernd getur ekki kallað á fjölskyldusameiningu með verndinni. Aftur á móti hefur þetta ekki þau áhrif að það komi í veg fyrir fjölskyldusameiningar. Enn getur fólk sótt hér um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar.
Svo vona ég að það sé líka búið að fara vel yfir þetta varðandi kvótaflóttamennina. Það er ívilnandi ákvæði sem felur það í sér að ef flóttamaður, sem talinn hefur verið týndur eða látinn, finnst og maki viðkomandi og fjölskylda hefur komið hingað til lands í boði íslenskra stjórnvalda þá bjóðum við þann einstakling að sjálfsögðu velkominn og fögnum honum og hann fær sömu vernd og hefði hann verið til staðar á þeim tíma þegar fjölskyldu hans var boðið til landsins.
Þá ætla ég aðeins að koma inn á þjónustuskerðinguna og rétt til bráðaheilbrigðisþjónustu. Það er alveg rétt sem við segjum hérna í nefndarálitinu: Á Íslandi er engum neitað um bráðaheilbrigðisþjónustu. Og við töldum bara mjög mikilvægt að setja það inn sem breytingartillögu og hnykkja sérstaklega á því vegna þess hvernig umræðan hafði verið hér í þingsal og úti í samfélaginu. Það stendur ekki til. En það er alveg skýrt, og ég átta mig á því að fólk hefur á því mismunandi skoðanir, að við erum með þjónustuskerðingu inni í þessu frumvarpi. Við erum nefnilega á þeirri skoðun að þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur fengið umsókn sína afgreidda hjá Útlendingastofnun með aðstoð löglærðs fulltrúa, fengið kærunefndina líka til að fara yfir þetta, aftur með aðstoð löglærðs fulltrúa á kostnað íslenska ríkisins, býr og fær uppihald á kostnað íslenska ríkisins í gegnum þetta ferli — ef viðkomandi fær synjun á báðum stöðum þá ber viðkomandi að víkja af landi brott. Við teljum það ekki geta verið mannréttindi einstaklinga, sem hafa ekki fengið alþjóðlega vernd, að búa áfram á Íslandi á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Þarna drögum línu í sandinn, það er alveg skýrt.
En undanþáguákvæðin eru töluverð: Þetta á ekki við um fjölskyldu með börn, ekki ófrískar konur, ekki mikið veikt fólk. Og fólk sem er í samvinnu við íslensk stjórnvöld um að yfirgefa landið býr í úrræðum á vegum ríkisins á meðan á þessu ferli stendur. (Forseti hringir.) Þannig að ég vona að þetta sé alveg skýrt því að þetta hefur málað upp í alls konar myndum. En þetta er það sem er verið að gera með frumvarpið. (Forseti hringir.) Ég hefði viljað koma inn á stjórnarskrána og mat á hagsmunum barna og eftirfylgni og ýmislegt annað. Því miður, virðulegur forseti, þá nægði mér ekki tíminn til þess. Ég vona að ræða mín og ræður okkar hér og nefndarálit skýri enn frekar það sem stendur í þessu frumvarpi því að þetta eru hóflegar og góðar breytingar (Forseti hringir.) á annars hóflegri og góðri útlendingalöggjöf sem Ísland býr við.