útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu sem var greinargóð að venju. En af því að hv. þingmaður er nú svolítið upptekinn af stefnu sósíaldemókrata í Skandinavíu (BHar: Ekkert sérstaklega.) þá langar mig kannski bara til að spyrja hana, af því að það er búið að tala mikið og oft um að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi farið í heimsókn bæði til Danmerkur og Noregs til að kynna sér stöðuna í málaflokknum í þessum ríkjum. Mér leikur forvitni á að vita upplifun hennar af því hvernig þessi ríki sinna þessum málaflokki. Er munur á Danmörku og Noregi og hvorri stefnunni myndi hún vilja framfylgja?