153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:03]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég ítreka það sem ég hef sagt áður; mér fannst þetta mjög góð ferð og hún var mjög upplýsandi fyrir okkur öll í nefndinni, held ég. Ég hef sagt það skýrt að ég vil mjög gjarnan horfa til Noregs og mér fannst það sem Norðmenn höfðu fram að færa í málaflokknum mjög áhugavert. Það er ekki síst, sem ég held reyndar að sé einna mikilvægasti þátturinn, það sem við höfum kallað aðlögun. Ég veit að það eru ekki allir alveg sáttir við það orð, en það eru samningar norska ríkisins við sveitarstjórnir þar sem sveitarfélögin bera ábyrgð á því að taka vel á móti fólki. Þetta er mjög svipað því sem við höfum verið að gera hér varðandi kvótaflóttamennina. En það er raunverulegur fjárhagslegur ávinningur af því fyrir sveitarfélagið að taka vel á móti umsækjanda, sinna börnunum vel í skólunum, aðstoða fólk við að komast inn í atvinnulífið. Ég held að það sé góð fyrirmynd. En það skal reyndar líka tekið fram, og það er kannski hluti af þessu þar sem við ræddum um hliðstæð samfélög áðan, að fólkið hefur ekkert val um hvert það fer. Það getur verið sent til Tromsø, Suður-Noregs eða eitthvert. (Forseti hringir.) Það er bara ákvörðun norskra stjórnvalda.