153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:04]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við gætum kannski litið þannig á að það sem hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er að reyna að gera með sveitarfélögunum sé fyrsti vísir að þessari aðlögun, sem skiptir auðvitað höfuðmáli horft til framtíðar, bæði að við náum að aðlagast og að þetta fólk nái að aðlagast nýjum heimavelli. Það skiptir máli.

Mig langar aðeins að nefna, af því að hv. þingmaður hefur ítrekað komið hér upp í pontu og ekki alveg áttað sig á stefnu ákveðinna stjórnmálaflokka í þessum málaflokki, að það getur kannski bara verið það að margir stjórnmálaflokkar aðhyllist sömu stefnuna. Það gæti bara verið sú staða að fleiri en einn stjórnmálaflokkur hafi sömu skoðun á málaflokknum.

Hv. þingmaður beindi spurningum til nokkurra þingmanna hér varðandi endursendingarbúðir. Ég bý í sveitarfélagi þar sem mikill fjöldi flóttamanna hefur sest að og dvelur þar ekkert endilega á þjónustusamningi við sveitarfélögin (Forseti hringir.) heldur vegna þess að Útlendingastofnun hefur komið þeim fyrir þar og ekki staðið sig mjög vel í þjónustunni. (Forseti hringir.) Ég spyr þá um hennar skoðun á endursendingarbúðum. (Forseti hringir.) Er hv. þingmaður að mæla fyrir því að það verði sett í lög í framhaldinu?