útlendinga.
Virðulegi forseti. Mig langar að bæta við fyrra andsvar mitt að ég horfi sérstaklega til Norðmanna varðandi aðlögunina. Ég veit það og ég er sammála því að Danir eru miklu harðari í sinni útlendingastefnu. En mig langar að benda hv. þingmanni á það, út af því að hann var að spyrja mig um þessar stefnur, að Bertel Haarder, sem er margreyndur danskur þingmaður úr systurflokki Viðreisnar, Venstre í Danmörku, fyrrverandi ráðherra dómsmála og menntamála, og við þekkjum hann vel úr norrænu samstarfi. Hann sagði skýrt við okkur á fundinum: Sko, það eru alþjóðasamningar um þetta. Um leið og eitthvert ríki fer að búa til einhverjar krúsindúllur eða einhverja útgöngu úr þessum alþjóðasamningum, þá brotnar undan þessu. Mér fannst þetta vel sagt hjá þessum mæta og mikið reynda stjórnmálamanni og ég held að það sé margt rétt í þessu.
Ég er ekki að tala fyrir því að við setjum upp endursendingarbúðir en ég útiloka það ekki að á einhverjum tímapunkti gætum við þurft að taka þá umræðu. Aftur á móti hef ég tekið talað um eitthvað sem heitir móttökubúðir og vísa þá til þess sem við heimsóttum í Danmörku en er líka í Noregi. (Forseti hringir.) Þ.e. allir komi þar saman eins og í samræmdu móttökunni okkar í Domus Medica, nema þar er líka búsetuúrræði og það er fyrst og fremst hugsað til þess að vernda þá einstaklinga sem þangað sækja (Forseti hringir.) og gefa stjórnvöldum smá svigrúm til að finna út hvar best er að koma viðkomandi fyrir í framhaldinu.