153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:08]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þátttökuna í þessari umræðu. Ég meina það mjög einlægt. Ég vil byrja á að leiðrétta það sem var haft eftir mér hérna rétt áðan þegar hv. þingmaður sagði að ég væri á þeirri skoðun að í stað þess að eyða öllum þessum peningum í að vísa fólki úr landi ætti að verja þeim í að bjóða alla velkomna. Það er alls ekki það sem ég hef sagt. Það sem ég hef sagt er að mér finnst að við ættum að eyða öllum þessum peningum í að leysa vandamálin sem við stöndum frammi fyrir við móttöku flóttafólks. Og það er ekki verið að gera það í þessu frumvarpi, ekki með neinum hætti.

Hv. þingmaður segir að þær breytingar sem á að gera með þessu frumvarpi séu löngu tímabærar. Þær eru það alls ekki. Það eru engar breytingar í þessu frumvarpi sem eru brýnar. Þau leysa engin vandamál í kerfinu, hvorki til langs tíma né skamms tíma varðandi þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag. Mér finnst gott að heyra hv. þingmann viðurkenna að það hafi ekki staðið til að hlusta á þá gesti sem komu fyrir nefndina á síðasta fundi, sama fundi og málið var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd, en ég ætla að fá að segja hvaða gestir það voru. Það var annars vegar Rauði krossinn á Íslandi og hins vegar var það þessi grasrótarhreyfing sem kallar sig Fellum frumvarpið, (Forseti hringir.) en að baki henni standa: Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty, ungmennaráð Þroskahjálpar, Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla, ungmennaráð UN Women, Ungir umhverfissinnar, Röskva – samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, háskólahreyfing Amnesty, Femínistafélag Háskóla Íslands og (Forseti hringir.) Q – félag hinsegin stúdenta, til viðbótar við ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna.

Ég kom ekki einu sinni að spurningu minni.