153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:09]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér finnst leiðinlegt ef ég hef farið rangt með. Ég var reyndar að vísa í orð hv. þingmanns, held ég, við umræðuna um fjárlög, að ég hafi skynjað þau orð sem þar féllu eitthvað á þessa leið. En hvað um það. Ég sagði heldur ekki að það hefði verið ætlunin að hlusta ekki á gestina. Og alveg eins og kom fram í ræðu minni þá hefur Rauði krossinn á Íslandi komið tvisvar sinnum til okkar við umfjöllun á frumvarpinu sjálfu og er með tvær umsagnir. Við höfum átt gott og mikið samtal við Rauða krossinn. Ég hef líka persónulega átt einkasamtöl við fulltrúa Rauða krossins einmitt í tengslum við afgreiðslu á þessu frumvarpi, þannig að það er rangt sem sagt var; að sjálfsögðu átti að hlusta á gestina. Það var mjög gaman að fá þetta unga, öfluga, kurteisa fólk sem mætti til okkar. En ég sagði líka að ef einhverjir héldu að samtökin Fellum frumvarpið myndu hafa mjög mikil áhrif á meiri hlutann þannig að við myndum allt í einu breyta um skoðun á þessu frumvarpi þá héldi ég að það væri það alger óskhyggja. En það þýðir ekki að það sé ekki hlustað á það sem gestirnir hafa fram að færa.