153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:11]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið við spurningunni sem ég náði ekki einu sinni að bera upp, en næ því vonandi núna á þessari mínútu — nú fæ ég allt í einu tvær mínútur. Þetta er allt mjög skrýtið hérna.

Það er rétt sem hv. þingmaður hefur sagt ítrekað, að það var tiltölulega vel brugðist við öllum beiðnum um gestakomur og annað. Það voru fjölmargir aðilar sem skiluðu inn umsögn um þetta frumvarp og ég heyri að hv. þingmaður hefur líka átt í óformlegum í samtölum við hina og þessa aðila. Það sem er kannski undarlegast við það er að það hefur ekkert verið tekið mark á þeim. Það hafa engar breytingar verið gerðar á þessu frumvarpi til að koma til móts við þær athugasemdir. Ég vona að ég hafi tíma til að telja upp þá aðila sem hafa gagnrýnt þetta frumvarp og svo vík ég að spurningunni minni. Þeir aðilar sem skiluðu inn umsögn og lýstu alvarlegum áhyggjum af frumvarpinu voru: Barnaheill, landlæknir, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, prestar innflytjenda og flóttafólks, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtökin ´78, Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og UNICEF. (Forseti hringir.) Spurningin mín til hv. þingmanns er: (Forseti hringir.) Nú eru þið búin að útskýra þetta aftur og aftur í einhverjum meirihlutaálitum og einhverju sem bætir engu við án þess að breyta frumvarpinu. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður alla þessa aðila bara vera að misskilja, að það þurfi að útskýra þetta betur fyrir þeim?