útlendingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og ætla að taka hana á orðinu. Hún er alltaf að auglýsa eftir stefnu Viðreisnar í þessum málaflokki, eins og sú stefna liggi ekki fyrir í fjölmörgum ræðum sem við höfum haldið. Hún er vissulega svolítið keimlík stefnu Samfylkingarinnar og Pírata og reyndar VG líka. Ég hefði reyndar meiri áhyggjur af því að stefna Sjálfstæðisflokksins í framkvæmd er orðin miklu líkari stefnu Miðflokksins og Flokks fólksins í þessum efnum, það er eitthvað sem ég hefði kannski frekar áhyggjur af. En við í Viðreisn viljum sem sagt leggja áherslu á mannúðlega stefnu í þessum málum. Við viljum að Ísland leggi sitt af mörkum til þróunarsamvinnu, mannúðar og neyðaraðstoðar sem og móttöku flóttafólks. Með mannréttindi og mannúð að leiðarljósi ætti Ísland að setja sér fordæmi í málefnum flótta- og farandfólks sem hingað leitar í von um betra líf. Veita skal flóttafólki og hælisleitendum mannsæmandi skjól og endurskoða þau búsetuúrræði sem standa þeim til boða. Hópnum þarf að tryggja réttindi til náms, vinnu og þjónustu hér á landi svo það geti búið sér betra líf og tekið virkan þátt í samfélaginu.
Við erum sem sagt að leggja áherslu á fólkið. Í stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins, sem samþykkt var á síðasta landsfundi, er hvað sagt? Sjálfstæðisflokkurinn undirstrikar nauðsyn þess að slá skjaldborg um verndarkerfi. — Ekki fólkið í kerfinu heldur kerfið sjálft. — (Forseti hringir.) Aðkallandi er að bregðast við fjölgun umsækjenda um alþjóðlega vernd með breytingum á útlendingalöggjöfinni sem taki mið af löggjöf nágrannalandanna. (Forseti hringir.) — Við vitum það ósköp vel, eins og hv. þingmaðurinn er að rekja hér, að löggjöfin í Danmörku eru allt önnur en í Noregi, að ekki sé talað um alla framkvæmdahlutina sem eru með ólíkum hætti. (Forseti hringir.) Þannig að mig langar að spyrja: Er ekki frekar sanngjarnt að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi villst af leið frekar en aðrir flokkar?