útlendingar.
Virðulegur forseti. Spurt er hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi villst af leið. Nei, það tel ég alls ekki vera. Mig langar líka að lesa fyrri hluta ályktunarinnar um útlendinga frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem segir einmitt:
„Bjóðum þau velkomin. Taka ætti vel á móti þeim sem vilja koma hingað til lands til að lifa og starfa. Mikilvægt er að tryggja öryggi erlends verkafólks og virða réttindi þeirra. Innflytjendur auðga bæði menningu og efnahag. Leyfa ætti fólki utan Evrópska efnahagssvæðisins, sem hefur fengið starf hér á landi og er með hreint sakavottorð, að koma hingað og starfa. Ísland ætti að sýna frumkvæði í því að bjóða fleiri kvótaflóttamönnum hingað.“
Svo segjum við líka það sem hv. þingmaður fór hér yfir áðan varðandi verndarkerfið því að við teljum að það þurfi ákveðna skjaldborg utan um verndarkerfið og, hv. þingmaður, ég held einmitt að þetta frumvarp sem við ræðum hér sé nákvæmlega í anda þess. Ég held reyndar líka að það sé í anda þeirrar stefnu sem hv. þingmaður las hér upp áðan. Ég held að við séum að gera mjög hóflegar en góðar og mikilvægar breytingar á útlendingalöggjöfinni okkar og þegar ég hef verið að kalla eftir stefnu annarra flokka (Forseti hringir.) þá hefur mér fundist oft meiri umræða um að það hafi ekki verið unnið með einhverjum ákveðnum hætti en að fólk segi þá raunverulega hvað það vill gera öðruvísi.