útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir. Ég virði það mjög hvað þingmaðurinn er duglegur að taka þátt í umræðunum um þetta mál því að það hefur talsvert skort á það að þingmenn meiri hlutans hafi komið hingað í þingsal til að standa fyrir máli sínu. En gott og vel, við erum að lesa hér upp stefnu stjórnmálaflokka. Ég hlustaði eftir því sem hv. þingmaður talaði um að væri stefna Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru falleg orð á blaði, en mig langar að vísa í upptalningu hjá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttir Gunnarsdóttur hér rétt áðan. Hún tiltók a.m.k. fjögur samtök; mannúðarsamtök, hjálparsamtök, sveitarfélög, Samtök sveitarfélaga og fleiri, sem beinlínis eru að segja það í umsögnum að sú stefna sem birtist í þessu frumvarpi og er þá byggð á stefnu Sjálfstæðisflokksins á borði en reyndar ekki í orði — að ekki sé verið að fara eftir henni. Mér finnst það nú eiginlega kannski frekar vera það sem við getum dregið út úr þessu öllu.
En áður en ég fer úr pontunni þá langar mig samt að spyrja hv. þingmann af því að hv. þingmaður er formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Við vorum með opinn fund í morgun með kærunefnd útlendingamála. Ég ætla svo sem ekkert að fara ítarlega í það sem þar kom fram (Forseti hringir.) en mig langar þó að spyrja hvort það sé þá ekki þó það sem við getum tekið með okkur af þeim fundi að þetta frumvarp sé ekki að gera neitt í því að taka á þeim mikla fjölda flóttamanna sem hingað er að koma, (Forseti hringir.) því að fólkið frá Venesúela er ekki hérna undir, augljóslega ekki miðað við það sem kom fram á fundinum í dag, og auðvitað heldur ekki fólkið frá Úkraínu. (Forseti hringir.) Þá erum við með tiltölulega afmarkaðan hóp sem eftir.