útlendingar.
Frú forseti. Ég ætlaði minnast hér á það sem kom fram á fundinum í morgun og hv. þingmaður nefndi í andsvari áðan, það er sú staðreynd að þetta frumvarp breytir sáralitlu um þá stöðu sem uppi er. Mér finnst það mjög óábyrgt að samþykkja frumvarp sem breytir litlu um þann mikla vanda sem er fyrir hendi og nær ekki yfirlýstu markmiði frumvarpsins, sem er að búa hér til samræmdar reglur um móttöku flóttamanna eins og eru í nágrannaríkjunum. Það er alveg ljóst að afgreiðsla mála t.d. frá Venesúela er með allt öðrum hætti hér á Íslandi en í nágrannaríkjunum og miklu fleiri fá hér hæli en t.d. í Noregi. Þannig að mér finnst gott að fá það fram hjá hv. þingmanni hvort hún sé sátt við þetta, hvort hún hefði viljað ganga lengra en gert er í frumvarpinu. Ég held að sé augljóst að ýmsir þættir í íslensku þjóðlífi kalli á að herða enn frekar löggjöfina.