útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil ítreka þá skoðun mína að vandamálið, þegar við ræðum það sem slíkt, er auðvitað stríð, eru einræðisherrar, er ofbeldi gagnvart fólki og hópi fólks. Flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna er bara fallegur, mikilvægur samningur sem er að taka utan um þessi hræðilegu mál. Ég segi bara: Hér eftir sem hingað til mun Ísland standa undir slíkum alþjóðasamningum.
Hv. þingmaður spyr hvort ég hafi með einhverjum hætti vilja ganga lengra. Ég vil ítreka það sem ég hef sagt hér áður, ég held að þetta séu mjög mikilvægar breytingar, þær munu hafa áhrif á kerfið okkar allt. En á meðan það ríkir stríð í Evrópu og ástandið er með þeim hætti eins og það er þá mun fjöldi flóttafólks koma. Ég vil taka vel á móti því fólki. Þannig að já, það á að vera öllum ljóst að eftir ferðina þá talaði ég fyrir því, og ég mun gera það áfram, að við ættum að hafa eins samræmd kerfi og mögulega er kostur við nágrannalöndin okkar. Ég held að það sé mikilvægt. Við erum með líka löggjöf, erum mjög lík samfélög og það er eðlilegt að það sé horft til þess að það séu ákveðin líkindi með kerfum Norðurlandanna.