153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:24]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf):

Frú forseti. Íslensk stjórnvöld eiga að axla aukna ábyrgð þegar kemur að málefnum fólks á flótta með því að rýmka frekar möguleika flóttafólks, sér í lagi barnafjölskyldna, til að öðlast hér alþjóðlega vernd og axla þannig ábyrgð sína á þessu sameiginlega verkefni alls heimsins sem m.a. má rekja til loftslagsvandans sem vestræn ríki eiga stóran þátt í að hafa valdið. Til þess þarf að leggja fram aukið fjármagn og fjölga starfsfólki Útlendingastofnunar og gera betur fyrir hvern og einn einstakling í stað þess að draga úr einstaklingsréttindum flóttafólks. Í 13. gr. frumvarpsins eru settar takmarkanir á það hverjir eiga rétt á fjölskyldusameiningu eftir að alþjóðleg vernd hefur verið veitt. Varðandi þessa grein vilja t.d. Barnaheill draga fram mikilvægi réttindi barna til fjölskyldusameiningar samkvæmt 9. og 10. gr. barnasáttmálans. Afar mikilvægt er að rýra ekki rétt barna til að sameinast foreldrum sínum og skulu ríki samkvæmt 10. gr. barnasáttmálans með jákvæðu hugarfari afgreiða beiðni barns eða foreldris þess um að koma til eða fara frá aðildarríki vegna endurfunda fjölskyldu. Lagt er til að orðalagi í 2. mgr. 45. gr. laganna verði breytt á þá leið að þeir einir sem uppfylla skilyrði 37. og 39. gr. laganna geti verið grundvöllur fjölskyldusameiningar. Þannig uppfylli einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd á grundvelli 45. gr. laganna ekki skilyrði fyrir frekari fjölskyldusameiningu á grundvelli ákvæðisins. Í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verndara alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, er að finna umfjöllun um þær breytingar sem gerðar eru í frumvarpinu á réttinum til fjölskyldusameiningar; horfið sé frá því að fella brott réttindi endurbúsettra flóttamanna til fjölskyldusameiningar og að réttur fjölskyldumeðlima þess sem nýtur alþjóðlegrar verndar til að hljóta sjálfir alþjóðlega vernd verði viðurkenndur. Með öðrum orðum, herra forseti, þá leggst Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gegn þeim breytingum sem boðaðar eru í frumvarpinu á réttinum til fjölskyldusameiningar. Mannréttindaskrifstofa Íslands fær ekki séð í sinni umsögn um frumvarpið hvaða lögmæta markmið eða ríka samfélagslega þörf búi að baki tillögu þessari. Rétturinn til fjölskyldulífs er varinn af 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, MSE, sem er hluti af landslögum, sbr. lög nr. 62/1994. Bent skal á að samkvæmt 8. gr. MSE skulu opinber stjórnvöld eigi ganga á rétt til fjölskyldu nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn beri til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra.

Ef takmarka á mannréttindi eins og réttinn til fjölskyldulífs þá þarf að uppfylla þrenns konar skilyrði til að takmörkunin sé heimil, þ.e. hún þarf að eiga sér stoð í lögum. Markmið sem takmörkunin stefnir að skal vera lögmætt og loks þarf hún að þykja nauðsynleg í lýðræðislegu þjóðfélagi. Hvað hið síðastnefnda varðar þá hafa aðildarríki svigrúm til mats en þau þurfa að sýna fram á að rík samfélagsleg þörf sé á takmörkun réttinda þeirra sem mannréttindasáttmáli Evrópu tryggir. Að auki má takmörkun réttinda ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til þess að markmiðið náist — meðalhófsregla. Þannig þarf að finna viðeigandi jafnvægi milli öndverðra hagsmuna og tryggja að takmarkanir á réttindum sem sáttmálinn verndar séu ekki úr hófi miðað við þau verðmætu markmið og hagsmuni sem þær stefna að.

Í ljósi þessa fæst ekki séð að framangreind takmörkun á rétti til fjölskyldusameiningar sem lögð er til í frumvarpinu uppfylli þau skilyrði og sjónarmið sem að framan eru rakin og er að engu vikið að í athugasemdum með 13. gr. eða í texta frumvarpsins að öðru leyti.

C-liður 8. gr. frumvarpsins kveður á um efnislegar breytingar á 2. málslið 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga sem fjallar um það hvenær umsækjendur öðlist rétt til efnismeðferðar vegna þess að afgreiðsla umsókna þeirra hefur dregist. Þetta er vissulega afar varhugavert og leggst Rauði krossinn t.d. alfarið gegn umræddri breytingu enda mun hún leiða til verulegra réttarskerðingar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og til að mynda leiða til þess að börn öðlast engan rétt til dvalar eftir birtingu lokaúrskurðar í máli þeirra þrátt fyrir að barn dvelji hér á landi lengur en í 12 mánuði. Í núgildandi lögum geta umsækjendur fengið efnismeðferð vegna tafa á afgreiðslu umsókna allt þar til þeir yfirgefa landið. Þannig er nú er miðað við heildardvalartíma umsækjanda á landinu, þ.e. þann tíma frá því að umsókn er lögð fram og þar til flutningur úr landi fer fram. Í athugasemdum með greininni segir að óljóst orðalag gildandi ákvæðis um lokafrest hafi í framkvæmd leitt til þess að ákvæðið sé túlkað á annan veg en sambærilegt ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna. Lagt er til að orðalag þessara tveggja ákvæða verði samræmt og taki mið af orðalagi 2. mgr. 74. gr. laganna þannig að lokafrestur sé skýr og miði við þann tíma þegar máli er lokið á stjórnsýslustigi, þ.e. með ákvörðun Útlendingastofnunar eða eftir atvikum úrskurði kærunefndar útlendingamála.

Brýnt tilefni er að mati Rauða krossins að skilgreina málsmeðferðartíma á heildstæðan hátt allt frá því að fólk leggur fram umsókn og þangað til það yfirgefur landið, en ekki aðeins þann tíma sem mál er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, líkt og nú er gert. Er þetta sérstaklega mikilvægt þegar um börn er að ræða, en hingað til hefur verið samstaða um að hagsmunir barna hnígi til þess að löng dvöl barns hér á landi skapi rétt til áframhaldandi dvalar og búsetu í raun óháð því hvernig stjórnvöld komust að niðurstöðu um að foreldrar barnsins ættu ekki rétt á efnismeðferð eða vernd hér á landi. En tillagan sem hér er til umfjöllunar miðar að hinu gagnstæða.

Umboðsmaður Alþingis fjallaði um tímafresti í 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga í áliti sínu nr. 9722/2018, sem lokið var þann 9. desember 2019. Í álitinu kemur fram sá skilningur að 12 mánaða fresturinn byrji að líða þegar útlendingur sækir um vernd og ljúki þegar flutningur hefur farið fram. Segir jafnframt að túlka beri ákvæði í ljósi þess að skipt getur máli að mörg stjórnvöld sem mynda heildstætt kerfi og annast saman um framkvæmd laganna hafi aðkomu að meðferð mála samkvæmt útlendingalögum. Nefnir umboðsmaður í því samhengi að kveðið sé á um það í lögunum að Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála, lögreglan, sýslumenn, Þjóðskrá Íslands og önnur stjórnvöld annist um framkvæmd þeirra. Mikilvægt er að litið verði til heildarmálsferðatíma við afmörkun tímafrests. Hér á landi eru einstaklingar og fjölskyldur sem fengið hafa niðurstöðu í máli sínu um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga, en lenda svo í þeirri stöðu að bíða brottflutnings í marga mánuði eða jafnvel ár. Undirbúningur og framkvæmd brottflutnings getur tekið langan tíma og eru dæmi um einstaklinga hér á landi sem hafa beðið á annað ár. Einstaklingar í þessari stöðu hafa mjög takmörkuð réttindi. Þeir hafa til að mynda ekki kennitölu, almennt ekki leyfi til að vinna og takmarkað aðgengi að heilbrigðiskerfinu.

Árið 2019 mótmæltu nemendur í Hagaskóla endursendingu 15 ára skólasystur sinnar, Zainab Zafari, til Grikklands. Til stóð að vísa Zainab og bróður hennar, Amir, til Grikklands ásamt einstæðri móður. Á sama tíma stóð til að vísa einstæðum föður og tveimur sonur hans til Grikklands. Eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun, mótmæli, undirskriftasafnanir, gerði dómsmálaráðherra breytingu á reglugerð um útlendinga þar sem Útlendingastofnun var gert heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns, sem fengið hefur vernd í öðru ríki, sé meira en tíu mánuðir liðnir frá því að umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Miðar reglugerðin ekki við þann tíma sem það tekur Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála að ljúka við að birta úrskurði sína heldur við heildardvalartíma hér á landi. En sú breyting sem hér er lögð til er í andstöðu við reglugerðarbreytingu sem miðar við flutning úr landi og var gerð til að koma í veg fyrir flutning á börnum og foreldrum þeirra til Grikklands þar sem þau höfðu hlotið alþjóðlega vernd.

Óljóst er hvað verður um ákvæði reglugerðarinnar verði ákvæðið samþykkt óbreytt. Einn megintilgangurinn með setningu ákvæða um tímafrest er að tryggja umsækjendum ákveðna vernd þegar afgreiðsla umsókna þeirra dregst úr hófi fram. Almennt er fólk sammála um að óhóflegur dráttur á afgreiðslu umsókna sé til þess fallinn að skaða hagsmuni umsækjanda, enda augljóst að langvarandi óvissa um framtíðaráform, dvalarstað og öryggi getur haft verulega neikvæð áhrif á heilsu og velferð einstaklinga. Þá er almennt viðurkennt að þessum sjónarmiðum sé gefið ríkara vægi við ákvarðanatöku er varðar börn. Mikilvægt er að ætíð verði miðað við heildardvalartíma hér á landi en ekki ákvarðanir Útlendingastofnunar og/eða úrskurði kærunefndar útlendingamála. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að ekki einungis umsækjandi sjálfur geti verið ábyrgur fyrir töf á eigin máli heldur einnig maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd.

Í athugasemdum við c-lið 8. gr. frumvarpsins segir að óskýrt orðalag gildandi ákvæðis hafi skapað óvissu og möguleika til misnotkunar, sérstaklega þegar um fjölskyldur eða fólk í hjúskap er að ræða. Rétt þyki að slíkt verði kveðið á um í lögum að tafir maka eða sambúðarmaka umsækjanda eða þess sem kemur fram fyrir hans hönd, t.d. foreldra, umsjónarmanna og talsmanna, leiði ekki til þess að umsækjandi hljóti efnismeðferð á grundvelli tímafrestsins.

Athygli vekur að í frumvarpinu er lagt til að horfið verði frá þeirri framkvæmd að láta tafir foreldra eða umsjónarmanna ekki bitna á rétti barna til efnislegrar meðferðar. Er hér raunar lagt til að barn missi rétt til efnismeðferðar ef foreldrar þess eða umsjónarmenn teljast vera valdir að töfum. Hingað til hafa börn verið talin eiga sjálfstæðan rétt til efnislegrar meðferðar eftir 12 mánaða dvöl á landinu, bæði óháð því hvenær lokaákvörðun var birt í máli þeirra og ástæðu fyrir lengd dvalar hér á landi. Umrædd breyting tekur ekki tillit til sérstakra þarfa barna og er ekki í samræmi við meginreglur barnaréttar um að við ákvörðunartöku skuli hafa bestu hagsmuni barna að leiðarljósi, en regluna er m.a. að finna í 2. mgr. 1. gr. barnalaga, nr. 76/2003. (Forseti hringir.)

Forseti. Ég sé að ég næ ekki að klára ræðu mína og óska ég eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.