útlendingar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni þessa yfirferð sína og það að hafa verið með sérstakan fókus á stöðu barna á flótta. Ég vil líka nefna sérstaklega það grettistak sem innfædd börn í íslenska skólakerfinu hafa lyft á undanförnum árum við að berjast í þágu sjálfsagðra réttinda flóttabarna. Krakkarnir í Hagaskóla, sem árið 2019 gengu hér um götur og mótmæltu brottvísun Zainab og fjölskyldu, höfðu mikið að segja. Og þrátt fyrir að það virðist vera meiri hluti í núverandi þingsal fyrir þessu skaðræðisfrumvarpi þá vekur það manni vissa von í brjósti að krakkarnir í Hagaskóla, sem mótmæltu fyrir fjórum árum, eru í dag flestir fullorðið fólk og geta kosið í næstu kosningum og munu vonandi fylgjast með því sem gerist hér þessa dagana og láta það hafa áhrif næst þegar þau velja fulltrúa inn á þing.
En mig langaði að spyrja, vegna þess að hv. þingmaður fór ágætlega yfir það hvernig hin ýmsu samtök sérfræðinga; Barnaheill, Flóttamannastofnun, Mannréttindaskrifstofa og Íslandsdeild Rauða krossins, komust öll að sömu niðurstöðu, benda á sömu atriðin sem er misfarið með í þessu frumvarpi. En meiri hlutinn veifar á móti einhverjum minnisblöðum frá dómsmálaráðuneytinu sem virðist vera eini aðilinn sem nær að kreista út að vera ósammála þessum sérfræðingum. Hvað segir það um stöðu þessa máls að rökin fyrir þessari réttindaskerðingu, sem er hér út um allt í frumvarpinu, séu ekki veigameiri, séu ekki sterkari gagnvart skýrum mótbárum sérfræðinga þannig að ráðuneytið segir bara: Af því bara?