153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:42]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka undir með mér. Það er ekkert í heiminum sem er viðkvæmara á meðal okkar heldur en börn. Og börn á flótta eru það skelfilegasta sem maður veit því að börn á flótta bera enga ábyrgð á þeirri stöðu sem þau eru í. Þau bera enga ábyrgð að vera lent í því að vera bara upp á náð og miskunn fólks komin sem jafnvel hefur engan skilning á aðstæðum þeirra. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, það er merkilegt að lesa umsagnir um þetta frumvarp. Þær eru fjölmargar og frá ýmsum mannúðarsamtökum sem virðist lítið hafa verið hlustað á og það er kannski það áhugaverðasta sem ég las um í þessum umsögnum sem hafa borist um þetta frumvarp, þ.e. raunverulega það fólk sem stendur næst því fólki sem þarf þau bjargráð sem eru til. Þau vita hvar eldurinn brennur á þessu fólki. Það eru Rauði krossinn, Mannréttindaskrifstofa, Barnaheill og fleiri sem öll geta þess sama meira og minna um hvað sé að. Það sem vakti athygli mína var hvernig þau spegla þessi atriði er snúa að börnum á flótta. Maður hugsar eiginlega með skelfingu um hvað gerist þegar börnin ílengjast hér og það á að vera búið að reka þau úr landi. Þau missa öll réttindi og eru sett á sveitarfélögin, á sveitina. Eiga sveitarfélögin að fara að opna súpueldhús eða hvers konar hlutskipti bíður þessara barna? Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda, hæstv. forseti. Ég verð því miður að beygja af þegar kemur að þessu máli.