153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það er einmitt þetta. Börn bera ekki ábyrgð á því að vera á flótta. Börn bera ekki ábyrgð á þeirri stöðu sinni heldur njóta þau réttinda sem stjórnvöldum er skylt að standa vörð um. Þess vegna hef ég hnotið reglulega um þetta atriði sem hv. þingmaður gerði að umtalsefni í ræðu sinni varðandi tafir á umsóknum barna, að það sé í alvöru verið að búa svo um hnútana í frumvarpinu að ef einhver annar en barnið „valdi“ töfum á umsókn þá eigi „barnið“ ekki að njóta þess. Þarna er búið að slíta allt svoleiðis sundur og saman og úr samhengi að maður fer að velta fyrir sér hvort stjórnvöld séu búin að gleyma því að hér er búið að lögfesta barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.