útlendingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka undir með mér í þessu máli varðandi þessa veiku stöðu barna á flótta og hvernig þau eru ofurseld hlutskipti sem þau hafa á engan hátt ákveðið að koma sér í og eru líka ofurseld því að hugsanlega hafi einhver tengdur þeim eða jafnvel óskyldur talsmaður, einhver annar, komið þeim í þá aðstöðu að 12 mánaða reglan fellur skilyrðislaust á þau. Þau hafa ekki rétt eins og sjálfstæðir einstaklingar til að bera hönd fyrir höfuð sér, að krefjast réttar síns og krefjast þess að fá sérstaka meðferð sem einstaklingar, fyrst og fremst sem einstaklingar, en ekki sem hluti af einhverjum hópi. Það er eiginlega skelfilegt til þess að hugsa að börn sem koma úr allt öðrum menningarheimi þurfi að eiga við kerfi sem skilur ekki þarfir þeirra.