útlendingar.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér fannst mjög áhugavert og skemmtilegt að hlusta á hana og líka sorglegt á sama tíma vegna þess að þetta er raunveruleikinn sem við stöndum frammi fyrir. Fylgdarlaust barn, ég get varla ímyndað mér einstakling í þjóðfélaginu sem er í viðkvæmari stöðu en barn sem kemur fylgdarlaust, af því að það er ekki einungis fylgdarlaust, ekki með neinn sem ætlar að sjá um velferð eða heilsu þess, hvernig því líður, heldur er það er líka mállaust, það hefur ekki tungumálið til að tjá sig með. Það kemur til landsins algerlega eitt
Ég held að fólk átti sig kannski ekki alveg á því ef það hefur ekki sett sig inn í þennan málaflokk hversu átakanlegur hann er og hversu ótrúlega viðkvæmur hópur þetta er. Þess vegna finnst mér alltaf mjög mikilvægt og gott þegar verið er að tala um málefni fylgdarlausra barna því að þau eru mikilvæg.
En í þessu frumvarpi kemur fram að t.d. þegar fylgdarlaust barn er orðið 18 ára og er mögulega að sækja um að vera hér lengur og það er einhver í umsóknarferlinu, kannski lögmaður þess, sem verður til þess að það verða einhverjar tafir, þá fær það skellinn af því.
Er hv. þingmaður sammála mér í því að í þessu frumvarpi sé verið að rýra rétt barna og ungs fólks sem hefur komið hérna sem fylgdarlaus börn?