útlendingar.
Herra forseti. Ég biðst afsökunar á þessum töfum, en mér hljóp kapp í kinn að svara hv. þingmanni sem ég þakka fyrir. Það vekur athygli að í frumvarpinu sem lagt er til, að horfið er frá þeirri framkvæmd að láta tafir foreldra eða umsjónarmanna ekki bitna á rétti barna til efnislegrar meðferðar. Er hér raunar lagt til að börn missi rétt til efnismeðferðar ef foreldrar þess eða umsjónarmenn teljast vera valdir af töfum. Hingað til hafa börn verið talin eiga sjálfstæðan rétt til efnislegrar meðferðar eftir 12 mánaða dvöl á landinu, bæði óháð því hvenær lokaákvörðun var birt í máli þeirra og ástæðum fyrir lengd dvalar hér á landi. Umrædd breyting tekur ekki tillit til sérstakra þarfa barna og er ekki í samræmi við meginreglur barnaréttar um að við ákvarðanatöku skuli hafa bestu hagsmuni barna að leiðarljósi, en regluna er m.a. að finna í 2. mgr. í 1. gr. barnalaga, nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur hér á landi þann 6. mars 2013 með lögum nr. 19/2013. Þá gengur umrædd breyting þvert á ákvæði 2. mgr. 2. gr. barnasáttmálans, en þar segir að aðildarríki skuli gera allar viðeigandi ráðstafanir til að sjá um að barni sé ekki mismunað eða refsað vegna stöðu eða athafna foreldra þess, lögráðamanna eða fjölskyldumeðlima. Ákvæðið beinist einkum gegn því að börn séu sett í þá aðstöðu að vera látin líða fyrir athafnir foreldra sinna eða ættingja sem þau eiga engan þátt í né bera ábyrgð á (Forseti hringir.) en eru samt látin gjalda fyrir vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu sinnar.